Grisjun skjala

Grisjun skjala felur í sér að skjöl sem tilheyra tilteknu skjalasafni eru tekin úr safninu og þeim eytt eða fargað samkvæmt viðeigandi reglum að fenginni heimild til grisjunnar. 

Markmiðið með grisjun í opinberum skjalasöfnum er vanalega að hindra að skjalavarsla stofnunarinnar/embættisins sé ekki íþyngt með skjölum sem hafa ekkert upplýsingagildi, e
iga sér samsvarandi skráningu í sama skjalasafni eða skjalasafni annarrar stofnunar eða hafa tímabundið upplýsingagildi

Á námskeiðinu verður fjallað um lög um opinber skjalasöfn og hvað segir þar um grisjun skjala hjá afhendingarskyldum aðilum (opinberum aðilum) og aðrar reglur sem hafa verið settar um varðveislu og eyðingu skjala.

Þá verður farið yfir það hvað er skoðað þegar ákveðið er að veita heimild til að eyða skjölum hjá afhendingarskyldum aðilum.

Farið verður yfir það hvernig á að sækja um heimild fyrir grisjun skjala og svo eru tekin raunveruleg dæmi þar sem grisjun hefur verið samþykkt eða henni hafnað.

Hæfniviðmið

Að þekkja hvaða lög og reglur gilda um varðveislu og eyðingu skjala.

Að þekkja þá þætti sem litið er til þegar metið er hvort skjöl eigi að vera varðveitt eða hvort hægt sé að eyða skjölunum.

Fyrirkomulag

Fyrirlestur og umræður.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    3. mars 2022 frá kl. 10:00-11:30.
  • Lengd
    1,5 klst.
  • Umsjón
    Árni Jóhannsson, skjalavörður hjá Þjóðskjalasafni Íslands
  • Staðsetning
    Vefám
  • Tegund
    Fjarnám
  • Verð
    8.250 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Fyrir þá sem koma að grisjun skjala hjá stofnunum.
  • Gott að vita
    Fyrir alla sem hafa áhuga á skjalavörslu og grisjun skjala.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting.
  • Tengiliður námskeiðs
    Björg Valsdóttir
    bjorg(hjá)smennt.is
    550 0060

Dagskrá

DagsetningDagskráKennari
03.03.2022Grisjun skjalaÁrni Jóhannsson