20 góð ráð í þjónustusímsvörun

Fjallað er um hvernig á að veita afbragðsþjónustu í gegnum síma. Kennd eru ýmis gagnleg ráð til að hafa samtöl faglegri og um leið hnitmiðaðri. Farið er yfir tækni sem má nota í samskiptum við erfiða einstaklinga í síma.

Þátttakendur fá rafbókina 20 góð ráð í þjónustusímsvörun og gátlista yfir lykilþætti í þjónustusímsvörun. Nánari upplýsingar um bókina má sjá á www.gerumbetur.is.

Hæfniviðmið

Að geta stýrt og stytt samtöl.

Að þekkja algeng mistök í þjónustusímsvörun.

Að læra ýmis ráð í samskiptum við erfiða einstaklinga.

Að efla öryggi í samskiptum og fagmennsku.

Fyrirkomulag

Námskeiðið er byggt upp með leiknum myndböndum, krossaspurningum og verkefnum. 

Námskeiðið er opið í fjórar vikur og fjórum vikum eftir námskeiðslok fá þátttakendur sendan tölvupóst með áminningu um mikilvæga þætti í þjónustusímsvörun.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    8. maí 2024. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst.
  • Lengd
    10 klst.
  • Umsjón
    Margrét Reynisdóttir, M.Sc. í stjórnun og stefnumótun og M.Sc. í alþjóða markaðsfræði
  • Staðsetning
    Vefnám utan rauntíma sem hægt er að nálgast hvar og hvenær sem er á námstímanum
  • Tegund
    Vefnám
  • Verð
    18.500 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Námskeiðið er opið öllum
  • Gott að vita
     
  • Mat
    Skila þarf verkefnum fjórum vikum eftir að námskeið hefst.
  • Ummæli
  • Mér fannst námskeiðið mjög gagnleg og skemmtileg. Eins var gott að vinna þau rafrænt og fá að velja þann tíma sem hentar.

    – Kolbrún Sigmundsdóttir

  • Þetta er námskeið sem ég hvet aðra til að taka.

    – Sigurlaug Lára Ingimundardóttir, ráðgjafi hjá Íbúðalánasjóði

  • Takk fyrir mig, mjög gott námskeið og ég sé líka að ég hef eitthvað gert rétt í gegnum árin en alltaf má bæta sig.

    – Brynhildur Baldursdóttir

  • Tengiliður námskeiðs
    Björg Valsdóttir

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
08.05.202420 góð ráð í þjónustusímsvörun00:0000:00Margrét Reynisdóttir