Að taka samtalið

Viltu fá tæki og tól í hendurnar og aukið sjálfstraust til að taka samtalið í vinnunni og ræða málin? Hvernig ræðum við það sem betur má fara, hvort sem það er frammistaða, samskipti eða fagmennska?

Á námskeiðinu er farið yfir hvernig við getum aukið færni okkar í að eiga gagnleg samtöl.

Fáa langar til að taka óþægilega samtalið og margir veigra sér við því. En aðgerðaleysinu fylgir óneitanlega sú hætta að vandamálið vaxi. Því er mikilvægt að stjórnendur búi yfir þekkingu og reynslu í að taka samtalið til að geta brugðist við þegar við á.

Samtölin geta verið mismunandi. Þau geta til dæmis verið leiðbeinandi samtöl þar sem ræða þarf ófullnægjandi frammistöðu, samskipti sem þarf að bæta eða eitthvað annað sem tengist vinnustaðnum og þarf að ræða.

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur fái aukinn skilning á því hvaða þættir eru mikilvægir til að eiga gott og gagnlegt samtal og auki hæfni sína í því að taka slík samtöl. Hvernig við setjum okkur sem best í spor þess sem við ræðum við og pössum upp á að gæta sálræns öryggis. Farið verður yfir undirbúning, hvað skiptir mestu máli í sjálfu samtalinu og hvernig er best að fylgja því eftir.

Þessu námskeiði er ætlað að undirbúa og þjálfa stjórnendur og færa þeim réttu verkfærin og tólin til að tækla þetta verkefni stjórnandans.

Umfjöllunarefni:

  • Fagleg samtöl
  • Undirbúning fyrir samtal
  • Samskipti og hlustun
  • Mismunandi sjónarhorn einstaklinga
  • Eftirfylgni og næstu skref

Hæfniviðmið

Að skilja hvað gerir samtal árangursríkt og hvaða þættir stuðla að góðri samtalsfærni

Að geta beitt markvissum aðferðum til að hefja og viðhalda uppbyggilegu samtali

Að geta átt samtal um viðkvæm eða erfið málefni með auknu sjálfstrausti

Að geta nýtt verkfæri og tól sem styrkja eigin tjáningu og hlustun í samtali

Að geta rætt um ólíkar skoðanir af virðingu og með opnum huga

Fyrirkomulag

Fyrirlestur, umræður og verklegar æfingar

Helstu upplýsingar

  • Tími
    15. apríl 2026 kl. 12.30 - 16.30. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst
  • Lengd
    4 klst.
  • Umsjón
    Inga Þórisdóttir, stjórnendaþjálfi
  • Staðsetning
    Endurmenntun Háskóla Íslands, Dunhagi 7, 107 Reykjavík
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Öll sem vilja auka færni sína og fá aukið sjálfstraust í að taka samtalið í vinnunni
  • Gott að vita
    Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum Starfsmenntar verða afskráð en geta skráð sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en þátttakandi hefur fengið staðfestingarpóst frá Endurmenntun HÍ
  • Mat
    Mæting
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
15.04.2026Að taka samtalið12:3016:30Inga Þórisdóttir