Jákvæð vinnustaðamenning skiptir máli!

Góð og uppbyggjandi vinnustaðamenning er grunnur að vellíðan í starfi. Jákvæð vinnustaðamenning getur haft mikil áhrif á starfsánægju, helgun sem leiðir til betri frammistöðu fyrirtækja og stofnana. Jákvæð menning á vinnustað spilar stærstan þátt í því að halda í gott starfsfólk.

Á þessu námskeiði verður fjallað um mikilvægi uppbyggjandi vinnustaðamenningar og leitast við að skapa meðvitund um það hvernig hvert og eitt getur haft áhrif á þróun hennar.

Á námskeiðinu er fjallað um:

  • Hvað er vinnustaðamenning?
  • Hvað einkennir góða vinnustaðamenningu?
  • Hvað getur hver og einn starfsmaður gert til að efla vinnustaðamenningu?
  • Hvað segja rannsóknir um vinnustaðamenningu?

Hæfniviðmið

Að þekkja og vera meðvituð um mikilvægi vinnustaðamenningar

Að bæta frammistöðu fyrirtækis/stofnunar

Að auka starfsánægju

Að bæta stjórnun

Fyrirkomulag

Æfingar, dæmi og umræður

Helstu upplýsingar

  • Tími
    18. nóvember 2025, kl. 09.00 - 12.30 Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst
  • Lengd
    3,5 klst.
  • Umsjón
    Guðrún Jóhanna Guðmundsdóttir og Hildur Halldórsdóttir, sérfræðingar og ráðgjafar í mannauðsmálum
  • Staðsetning
    Endurmenntun Háskóla Íslands, Dunhagi 7, 107 Reykjavík
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Námskeiðið er fyrir stjórnendur og öll sem vilja hafa jákvæð áhrif á vinnustaðamenninguna á sínum vinnustað
  • Gott að vita

    Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga rétt hjá samstarfssjóðum Starfsmenntar verða afskráð en geta skráð sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en þátttakandi hefur fengið staðfestingarpóst frá Endurmenntun HÍ.

Skráning á þetta námskeið hefst 05. 08 2025 kl 09:00
  • Mat
    Mæting og þátttaka
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
18.11.2025Jákvæð vinnustaðamenning skiptir máli!09:0012:30Guðrún Jóhanna Guðmundsdóttir og Hildur Halldórsdóttir