Verkefnastjórnun - fyrstu skrefin
Skráningu lýkur 19. apríl kl.10:00.
Á námskeiðinu er farið í grunninn á verkefnastjórnun sem og hvað verkefnastjórnun er og hvar hún getur nýst. Áhersla er á undirbúning og eftirfylgni verkefna til að tryggja árangur. Námskeiðið veitir heildarsýn á uppbyggingu verkefna og hvernig hægt er að beita verkefnastjórnun á lítil sem stór verkefni.
Á námskeiðinu er fjallað um:
- Skilgreiningu á hvað er verkefni og hvað er verkefnastjórnun.
- Undirbúning verkefna og ræs.
- Hvernig skilgreina á markmið verkefna og hvernig árangur er metinn.
- Uppsetning verkefnis: Hvernig tíma- og kostnaðaráætlanir líta út.
- Eftirfylgni verkefnisáætlunar.
- Skil og lúkning verkefna.
Hæfniviðmið
Að auka skiling á verkefnastjórnun og leiðum til betri árangurs og þróa hæfni í að taka við verkefnum og leysa þau.
Fyrirkomulag
Kennsla fer fram með fyrirlestrum og umræðum. Tekin verða fyrir hagnýt og raunveruleg verkefni sem flestir ættu að geta samsvarað sig við.Helstu upplýsingar
- TímiÞriðjudagur 9. maí frá kl. 12:30 - 16:30
- Lengd4 klst.
- UmsjónSveinbjörn Jónsson M.Sc. í verkfræði og MPM.
- StaðsetningEndurmenntun Háskóla Íslands, Dunhagi 7, 107 Reykjavík
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurFélagsmenn Starfsmenntar sem vilja kynnast aðferðfræði verkefnastjórnunar.
- Gott að vita
Eingöngu félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar geta skráð sig hér á námskeiðið.
Aðrir verða að skrá sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands.
Sæti á námskeiðin teljast ekki 100% örugg fyrr en Starfsmennt hefur breytt stöðu skráningar úr “nýr” í “samþykkt”, póstur verður sendur á þáttakendur þess efnis viku áður en námskeiðið hefst.
- MatMæting
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
09.05.2023 | Verkefnastjórnun - fyrstu skrefin | 12:30 | 16:30 | Sveinbjörn Jónsson |