Heilaheilsa og þjálfun hugans

Á námskeiðinu verður fjallað um heilaheilsu og hvernig hugrænir þættir (s.s. einbeiting, athygli, minni, skipulagsfærni og félagsskilningur) hafa áhrif á okkar daglega líf.

Hugræn geta á við um starfsemi heilans sem gerir okkur kleift að vera virk í daglegu lífi, s.s. heima, í vinnu og í samskiptum. Áhersla á heilaheilsu hefur aukist síðustu áratugina og rannsóknir hafa sýnt fram á gagnsemi ýmissa leiða til að þjálfa heilann, s.s. hreyfingu, nám, fjölbreytt áhugamál og hugræna þjálfun. Hugræn þjálfun hefur víða verið rannsökuð og er nú í boði sem meðferð fyrir ýmsa hópa.

Á námskeiðinu er fjallað um:

  • Heilaheilsu og hugræna þætti, s.s. einbeitingu, athygli, minni, félagsskilning og áhrif þeirra á daglegt líf.
  • Leiðir til að auka innsýn í eigin hugrænu styrkleika og veikleika.
  • Hugræna þjálfun.
  • Hvernig á að útbúa þjálfunaráætlun til að bæta hugræna getu og meta árangurinn.

Ávinningur þinn:

  • Aukinn skilningur á hugrænum þáttum og áhrifum þeirra á daglegt líf.
  • Tækifæri til að fá nýja sýn á eigin færni og nýjar leiðir til að ná settum markmiðum.

Hæfniviðmið

Að öðlast þekkingu á hugrænum þáttum og hvaða hlutverki þeir gegna í okkar daglega lífi.

Að öðlast betri innsýn í eigin hugrænu styrkleika og veikleika.

Að læra leiðir til að þjálfa hugann.

Fyrirkomulag

Fyrirlestur

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Mánudagur 28. mars og mánudagur 4. apríl kl. 17:15 - 20:15
  • Lengd
    6 klst.
  • Umsjón
    Ólína G. Viðarsdóttir, sálfræðingur og doktor í líf- og læknavísindum við HÍ
  • Staðsetning
    Endurmenntun Háskóla Íslands, Dunhagi 7, 107 Reykjavík
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Námskeiðið er ætlað öllum sem vilja fræðast um heilaheilsu og leiðir til að þjálfa hugræna þætti á markvissan hátt.
  • Gott að vita
    Aðildarfélögum Starfsmenntar að kostnaðarlausu.Eingöngu félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar geta skráð sig hér á námskeiðið.Aðrir verða að skrá sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands.Sæti á námskeiðin teljast ekki 100% örugg fyrr en Starfsmennt hefur breytt stöðu skráningar úr “nýr” í “samþykkt”, póstur verður sendur á þáttakendur þess efnis viku áður en námskeiðið hefst.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting og þátttaka
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce
    soffia(hjá)smennt.is
    5500050

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
28.03.2022Heilaheilsa og þjálfun hugans17:1520:15Ólína G. Viðarsdóttir
04.04.202217:1520:15