Virkjaðu skapandi hugsun

Hvernig getum við virkjað skapandi hugsun í lífi og starfi?

Í síbreytilegu umhverfi nútímans er mikilvægt að geta notað skapandi hugsun til þess að efla nýsköpun og aðlagast nýjum aðstæðum. Þegar við nálgumst tæknina með opnum huga og forvitni verða til fleiri hugmyndir, betri spurningar og skýrari lausnir sem getur sparað tíma og aukið gæði vinnunnar.

Á þessu námskeiði kynnist þú ýmsum aðferðum sem styðjast við vísindalegar rannsóknir með það að markmiði að efla eigin sköpunarkraft og auka velgengni. Þú lærir að virkja sköpunarkraftinn og nýta hann á markvissan hátt í starfi og daglegu lífi. Jafnframt er fjallað um hvernig skapandi hugsun getur stutt við árangursríka notkun gervigreindar.

Efnistök:

  • Gagnreyndar aðferðir úr smiðju jákvæðrar sálfræði 
  • Áhrifaríkar leiðir til þess að draga úr álagi og minnka streitu
  • Hugtakið skapandi hugsun og hvernig má efla hana
  • Leiðir til að yfirstíga hindranir og virkja skapandi hugsun
  • Hagnýtar aðferðir til að örva hugmyndaflug og nýja nálgun
  • Leiðir til að nýta eigin styrkleika og auka frumkvæði og árangur
  • Tengsl skapandi hugsunar og notkun gervigreindar í starfi 

Hæfniviðmið

Að auka hæfni til að hugsa út fyrir rammann og takast á við verkefni með opnum huga

Að efla sjálfstraust til að geta þróað eigin hugmyndir í starfi

Að auka skilning á því hvernig skapandi hugsun og gervigreind geta unnið saman

Fyrirkomulag

Vinnustofa, fyrirlestur, umræður og hópaverkefni

Helstu upplýsingar

  • Tími
    14. apríl 2026, kl. 13.00 - 15.00. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst
  • Lengd
    2 klst.
  • Umsjón
    Steinunn Ragnarsdóttir, stjórnunarráðgjafi og leiðbeinandi
  • Staðsetning
    Fræðslusetrið Starfsmennt, Skipholti 50b, 3.hæð, 105 Reykjavík
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    15.000 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Öll sem hafa áhuga á að kynnast gagnreyndum leiðum til þess að virkja skapandi hugsun og sköpunarkraft til þess að efla árangur og skapa nýja möguleika
  • Mat
    Mæting, þátttaka
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
14.04.2026Virkjaðu skapandi hugsun13:0015:00Steinunn Ragnarsdóttir