Gervigreind fyrir byrjendur- framhald

Viltu læra að nýta gervigreind enn betur í daglegu starfi og ná dýpri tökum á verkfærunum?

Þetta framhaldsnámskeið byggir ofan á grunnnámskeiðið Gervigreind fyrir byrjendur og fer lengra í að sýna raunhæf dæmi og æfingar. Hentar einnig þeim sem eru byrjaðir að prófa sig áfram með gervigreindartól. 

Á námskeiðinu skoðum við hvernig þú getur: 

  • mótað betri fyrirspurnir (prompts) til að fá nákvæmari niðurstöður
  • notað ChatGPT til að búa til efni, greina gögn og skipuleggja verkefni
  • nýtt Perplexity til að gera dýpri rannsóknir og bera saman heimildir
  • tengt Gemini við Google-verkfæri til að auka skilvirkni
  • unnið með myndir og myndbönd – t.d. búa til nýjar myndir, bæta gæði eða láta gervigreind aðstoða við klippingu og úrvinnslu

Hæfniviðmið

Að þekkja enn betur til gervigreindar og tengdra hugtaka

Að geta nýtt mismunandi gervigreindartól í lífi og starfi

Að þekkja helstu styrkleika og takmarkanir núverandi gervigreindartækni

Fyrirkomulag

Sýnikennsla og umræður

Helstu upplýsingar

  • Tími
    16. apríl 2026, kl. 13.00-15.00. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst
  • Lengd
    2 klst.
  • Umsjón
    Hermann Jónsson, sérfræðingur í stafrænum málefnum
  • Staðsetning
    Vefnám í rauntíma, kennt á Teams
  • Tegund
    Streymi
  • Verð
    15.000 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Þau sem hafa kynnt sér grunninn í gervigreind og vilja læra að nýta verkfærin markvissara, með meiri áherslu á hagnýtar æfingar, skapandi verkefni og dýpri skilning
  • Mat
    Mæting
  • Tengiliður námskeiðs
    Ingibjörg Hanna Björnsdóttir

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
16.04.2026Gervigreind fyrir byrjendur- framhald13:0015:00Hermann Jónsson