Stafræn þróun - Fríir veffyrirlestrar - hægt að byrja strax

Fræðslusetrið Starfsmennt var stofnað árið 2001 og fagnar því 20 ára afmæli árið 2021. Í tilefni þess var ákveðið að bjóða upp á nokkra fría veffyrirlestra um stafræna færni og menningarnæmi. 

Falsfréttir, samfélagsmiðlar og gervigreind - eitruð blanda fyrir framtíð lýðræðis?
Elfa Ýr Gylfadóttir fjölmiðlafræðingur og framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar fer yfir áhrif upplýsingaóreiðu og áskoranir tengdar dreifingu á röngum og misvísandi upplýsingum.

Upplýsingalæsi í daglegu lífi
Viltu verða betri í að finna það sem þú leitar að á netinu? Irma Hrönn Martinsdóttir upplýsingarfræðingur við HR og formaður Vinnuhóps íslenskra háskólabókasafna um upplýsingalæsi gefur hagnýt ráð til að efla upplýsingalæsi.

Menningarnæmi - vertu betri í að skilja ólíka menningarheima og lifa í samfélagi margbreytileikans
Í fyrirlestrinum fjallar Nichole Leigh Mosty forstöðumaður Fjölmenningarseturs um hugtök og aðferðir tengdar menningarnæmi. Nichole er frá Bandaríkjunum og hefur búið á Íslandi meira en 20 ár. Hún fléttar inn í fyrirlesturinn eigin reynslu af því að vera innflytjandi á Íslandi.

Persónuvernd í stafrænu samfélagi
Helga Grethe Kjartansdóttir starfar sem persónuverndarfulltrúi og lögfræðingur hjá Símanum og fer í þessum fyrirlestri m.a. yfir það hvaða stafrænu fótspor við skiljum eftir og hvernig við sjálf getum tryggt rétta meðferð upplýsinga um okkur sjálf í stafrænum heimi.

Ógnir internetsins - láttu ekki hakka þig!
Valdimar Óskarsson framkvæmdastjóri netöryggisfyrirtækisins Syndis segir frá því hvernig hakkarar vinna og gefur ráð um hvernig við getum verið á varðbergi og aukið stafrænt öryggi okkar.

Skráðir þátttakendur hafa aðgang að upptökum til 29. apríl 2022. Þegar búið er að skrá sig er farið á Mínar síður og smellt á heiti námskeiðs. Fyrirlestrarnir eru aðgengilegir undir flipanum Kennslugögn.

Helstu upplýsingar

  • Lengd
    6 klst.
  • Staðsetning
    Veffyrirlestrar
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Gott að vita
    Skráðir þátttakendur hafa aðgang að upptökum til 29. apríl 2022. Þegar búið er að skrá sig er farið á Mínar síður og smellt á heiti námskeiðs. Fyrirlestrarnir eru aðgengilegir undir flipanum Kennslugögn.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Tengiliður námskeiðs
    Sólborg Alda Pétursdóttir
    solborg(hjá)smennt.is

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
31.03.2022Fríir veffyrirlestrar í tilefni 20 ára afmælis Fræðslusetursins Starfsmenntar00:0000:00Fræðslusetrið Starfsmennt