Canva, hönnun margmiðlunarefnis

Canva er öflugt og einstaklega notendavænt verkfæri með ókeypis aðgangi þar sem þú getur búið til grípandi margmiðlunarefni.

Með Canva getur þú t.d. búið til kynningar (slides), efni fyrir samfélagsmiðla, textaskjöl með myndefni (t.d. skýrslur og ferilskrár),  bæklinga, lógó, plaggöt, myndbönd og einfaldar vefsíður á þægilegan hátt án þess að þurfa neina reynslu af hönnun.

Canva býður upp á mikið safn af tilbúnum sniðmátum sem þú lærir að aðlaga að þínum þörfum.

Á námskeiðinu er farið yfir helstu möguleika Canva sem veitir þér hagnýta færni til að nýta þetta öfluga tól.

Hæfniviðmið

Að ná öruggum tökum á Canva fyrir fjölbreytt verkefni.

Fyrirkomulag

Vefnámskeið sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er. Á fyrsta degi veitir kennarinn þér aðgang að rafrænu netskólakerfi þar sem námsefnið (kennslumyndbönd, textapistlar, leiðbeiningar og verkefni) er aðgengilegt. Hann er þér innan handar í gegnum tölvupóst, vefspjall eða þjónustusíma.

Námskeiðið er sett fram sem 3 vikna kúrs (18. klst.) Námskeiðið er þar að auki opið í 12 mánuði eftir lokadag svo nemendur hafa nægan tíma til að rifja upp að vild.

Nánari upplýsingar um námskeiðið fást hjá kennara í síma 788 8805 milli kl. 10 – 20 virka daga eða í gegnum netfangið kennari(hjá)nemandi.is

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Skráning er opin til 29. september 2025 en upphafið er valfrjálst
  • Lengd
    18 klst.
  • Umsjón
    Bjartmar Þór Hulduson
  • Staðsetning
    Vefnám utan rauntíma sem hægt er að nálgast hvar og hvenær sem er á námstímanum
  • Tegund
    Vefnám
  • Verð
    52.000 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Öll sem vilja kynnast Canva og ná öruggum tökum á því fyrir fjölbreytt verkefni
  • Mat
    Verkefnaskil
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
29.09.2025Canva12:0006:00Bjartmar Þór Huduson