Sýslumenn | Margmiðlun og kynningar í Powerpoint

Á þessu námskeiði lærir þú að útbúa vönduð og eftirtektarverð gögn í Powerpoint s.s. glærur, námsgögn og skjásýningar. Þú getur hafið námið þegar þér hentar með því að hafa samband við kennarann og beðið um að hann opni á aðganginn um leið og skráning hefur verið samþykkt.

Þú kynnist sniðskjölum og hvernig er best að nota sniðmát, gera textabreytingar, stilla litasamsetningar og myndefni. Þú lærir á lista, töflur, mynd- og skipurit, hvernig á að stilla haus og fótlínur og setja upp minnispunkta. Þú lærir að raða glærum, setja upp útlínur, nota hreyfimyndir, hljóðsetningu og hvernig á að setja upp sjálfvirka spilun.

Þetta námskeið hentar öllum sem vilja flytja mál sitt á skýran og skilmerkilegan máta og koma efni á framfæri á lifandi og eftirtektarverðan hátt.

Hæfniviðmið

Að geta útbúið vönduð og eftirtektarverð gögn í Powerpoint s.s. glærur, námsgögn og skjásýningar.

Fyrirkomulag

Vefnámskeið sem er opið í 3 vikur og hægt er að stunda hvar og hvenær sem er. Á fyrsta degi veitir kennarinn þér aðgang að rafrænu netskólakerfi þar sem námsefnið er aðgengilegt. Hann er þér innan handar í gegnum tölvupóst, vefspjall eða þjónustusíma.

Nánari upplýsingar um námskeiðið fást hjá kennara í síma 788 8805 milli kl. 10 – 20 virka daga eða í gegnum netfangið kennari(hjá)nemandi.is

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Skráning er opin til 17. maí 2024 en upphafið er valfrjálst.
  • Lengd
    18 klst.
  • Umsjón
    Bjartmar Þór Hulduson, tölvukennari
  • Staðsetning
    Vefnám utan rauntíma sem hægt er að nálgast hvar og hvenær sem er á námstímanum
  • Tegund
    Vefnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Starfsfólk hjá Sýslumannsembættum
  • Mat
    Verkefnaskil
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
17.05.2024Margmiðlun og kynningar í Powerpoint23:5923:59Bjartmar Þór Hulduson