Dómstólasýslan - Excel framhald - Vefnám - Valfrjálst upphaf. Skráning frá 07.03 til 30.06
Námskeiðið er vefnámskeið, sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er. Þátttakendum stendur til boða "valfrjálst upphaf" - þ.e.a.s. hægt er að hafa samband við kennarann og hefja leikinn um leið og skráning er samþykkt.
Á námskeiðinu er farið yfir:
- Mikilvægustu gagnavinnsluföllin.
- Hvernig gögn eru sótt sjálfvirkt á Netið inn í Excel til vinnslu.
- Snúningstöflur (Pivot).
- Uppflettiföll, leitar- og rökfræðiföll.
- Erlenda gagnagrunna.
- Hvernig gögn eru sótt í gagnavinnslukerfi.
- Röðun og síun gagna.
- Tengingar milli skjala og innan vinnubókar.
- Verndun og læsingu gagna.
- Fjölvavinnslu (Macros) og gerð þeirra.
- Fjármálaföll.
Nemendur fá sent námshefti og kennslumyndbönd á netinu.
Hæfniviðmið
Að efla færni í notkun Excel.
Að geta haldið utan um skipulag og úrvinnslu stórra gagnaskráa.
Fyrirkomulag
Vefnám. Þátttakendur fá send námsgögn og vinna verkefni rafrænt. Námskeið stendur yfir í þrjár vikur auk þess sem stuðningstími er veittur að því loknu. Aðgangur að námsefni er opinn allt skólaárið.Helstu upplýsingar
- Lengd18 klst.
- UmsjónBjartmar Þór Hulduson, tölvukennari
- StaðsetningVefnám
- TegundFjarnám
- VerðÁn kostnaðar
- MarkhópurStarfsfólk dómstólanna
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacrocesmennt(hjá)smennt.is5500060
- MatVerkefnaskil
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
Gott að vita
Aðstoð er veitt í gegnum netfangið kennari(hjá)nemandi.is og í þjónustusíma 788 8805 frá kl. 10-20 alla virka daga.
Námskeiðið er aðildarfélögum Starfsmenntar að kostnaðarlausu en Dómstólasýslan greiði fyrir aðra. Námskeiðið er aðeins ætlað þeim sem boðaðir hafa verið á það.
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Kennari |
---|---|---|
30.06.2022 | Excel, framhald | Bjartmar Þór Hulduson |