Sáttamiðlun fyrir stjórnendur

Markmið námskeiðsins er að kynna sáttamiðlun sem aðferð til að leysa áreinings- og deilumál.

Farið verður yfir hugmyndafræði sáttamiðlunar og hvernig stjórnendur geta nýtt sér sáttamiðlun sem verkfæri til að grípa fyrr inn í þau vandamál sem upp koma og þannig jafnvel komið í veg fyrir stærri ágreiningsmál. Þátttakendur fá tækifæri til að spreyta sig á stuttri æfingu til að auka færni sína og dýpka þá þekkingu sem farið er yfir á námskeiðinu.

Umfjöllunarefni:

  • Undirstöðuatriði sáttamiðlunar og hugmyndafræði hennar
  • Hvenær hentar að nýta sáttamiðlun – og hvenær ekki

Hæfniviðmið

Að þekkja hugmyndafræði sáttamiðlunar og helstu undirstöðuatriði hennar

Að kunna hlutverk stjórnanda/sáttamiðlara í lausn ágreiningsmála

Að geta nýtt verkfæri sáttamiðlunar (t.d. spurninga- og samningatækni) í starfi

Að geta greint hvenær sáttamiðlun hentar og hvenær ekki

Að auka hæfni til að styðja við lasunamiðaða nálgun með sameiginlegri niðurstöðu

Fyrirkomulag

Fyrirlestur og umræður

Helstu upplýsingar

  • Tími
    25. mars 2026 kl. 12.30 - 16.30. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst
  • Lengd
    4 klst.
  • Umsjón
    Lilja Bjarnadóttir, LL.M. sáttamiðlari og lögfræðingur
  • Staðsetning
    Endurmenntun Háskóla Íslands, Dunhagi 7, 107 Reykjavík
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Fyrir stjórnendur og aðra sem vilja getað notað sáttamiðlun með beinum eða óbeinum hætti í sínu starfi
  • Gott að vita
    Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum Starfsmenntar verða afskráð en geta skráð sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en þátttakandi hefur fengið staðfestingarpóst frá Endurmenntun HÍ
  • Mat
    Mæting
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
25.03.2026Sáttamiðlun fyrir stjórnendur12:3016:30Lilja Bjarnadóttir