Trúnaðarmenn Sameykis |Starfsemi Sameykis og túlkun kjarasamninga
Farið er yfir starfsemi Sameykis og réttindi félagsfólks í sjóðum stéttarfélaganna, svo sem styrktar- og sjúkrasjóði, fræðslusjóðum, orlofssjóði og vinnudeilusjóði. Þá er farið yfir grundvallarkafla kjarasamnings þar sem fjallað er um vinnutíma og skipulag, vaktavinnu og hvíldartíma, matar- og kaffitíma, orlof, veikindarétt, uppsagnarákvæði og fleira. Einnig er fjallað um launamyndunarkerfi eins og starfsmat og stofnanasamninga.
Hæfniviðmið
Að vera meðvituð um hvernig stéttarfélagið starfar
Að þekkja sjóði stéttarfélagsins og réttindi félagsfólks í þeim
Að þekkja innihald og uppbyggingu kjarasamninga og helstu túlkun á þeim
Að vera meðvituð um gildi kjarasamninga og ráðningarsamninga
Að þekkja til helstu launamyndunarkerfa og geta lesið sig í gegnum launamyndun einstaklinga
Fyrirkomulag
Fyrirlestur og umræður
Helstu upplýsingar
- Tími1. október 2025, kl. 9.00 - 12.00
- Lengd3 klst.
- UmsjónStarfsfólk frá Félagsdeild Sameykis
- StaðsetningGrettisgata 89, 1. hæð
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurTrúnaðarmenn Sameykis
- MatMæting
- Tengiliður námskeiðsJóhanna Þórdórsdóttir hjá Sameyki og Sólborg Alda Pétursdóttir hjá Starfsmennt
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
01.10.2025 | Starfsemi Sameykis og túlkun kjarasamninga | 09:00 | 12:00 | Starfsfólk frá Fjármáladeild, Félagsdeild og Kjaradeild Sameykis |