SSH | Ofbeldi - í þjónustu við fatlað fólk

Á þessu námskeiði verður fjallað um þróun mannréttindaverndar fatlaðs fólks með áherslu á jafnrétti, ójöfn valdahlutföll, forréttindi og jaðarstöðu.

Lögð verður áhersla á að reyna að skilja ólíkar og flóknar birtingarmyndir ofbeldis gagnvart fötluðu fólki.

Þá verður fjallað um ofbeldismenningu og ábyrgð starfsfólks á að vinna gegn slíkri menningu í þjónustu við fatlað fólk.

Hæfniviðmið

Að geta gert grein fyrir ólíkum birtingarmyndum ofbeldis í þjónustu við fatlað fólk

Að geta gert grein fyrir valdastöðu sinni og ábyrgð þegar kemur að því að vinna að jafnrétti

Að kunna uppræta vinnulag og verkferla sem ýta undir ofbeldismenningu

Fyrirkomulag

Fyrirlestur, myndbönd, umræður og verkefni

Helstu upplýsingar

  • Tími
    30. september 2025, kl. 13:00 - 16:00. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst
  • Lengd
    3 klst.
  • Umsjón
    Helga Baldvins Bjargardóttir, M.L.-gráða í lögfræði frá HR, Diplómanám í fötlunarfræðum við HÍ
  • Staðsetning
    Vefnám í rauntíma, kennt á Teams
  • Tegund
    Streymi
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Aðeins fyrir starfsfólk sem starfar að málefnum fatlaðs fólks í Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Garðabæ, Seltjarnarnesi, Andrastöðum á Kjalarnesi og Ás Styrktarfélagi. Æskilegt er að starfsfólk sæki um SSH námskeiðin í samráði við sína yfirmenn
  • Gott að vita
    Skráðir þátttakendur eru vinsamlegast beðnir um að láta vita ef þeir sjá ekki fram á að komast á námskeiðið. Hægt er að afskrá sig á “mínar síður”, hafa samband á smennt@smennt.is eða í s: 550 0060
Skráning á þetta námskeið hefst 05. 08 2025 kl 09:00
  • Mat
    Mæting og þátttaka
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
30.09.2025Ofbeldi í þjónustu við fatlað fólk 13:0016:00Helga Baldvins Bjargardóttir