Líðan, heilsa og öryggi starfsfólks

Hvernig er hægt að stuðla að vellíðan fólks á vinnustað og auðvelda einstaklingum að ná árangri?

Á þessu námskeiði verður fjallað um líðan, heilsu og öryggi starfsfólks út frá fræðum gæðastjórnunar og vinnuverndar.

Fjallað verður um félagslega og sálræna þætti sem og vinnuaðstöðu. Einnig hvernig hæfni einstaklinga er metin og hvernig henni er viðhaldið.

Viðhorf starfsfólks til sinna daglegu starfa og umhverfis síns leggur grunn að góðri starfsemi skipulagsheilda. Göngum glöð til starfa alla daga!

Á námskeiðinu er fjallað um:

  • Hvað er góður vinnustaður samkvæmt gæðastjórnunarfræðum?
  • Heilsu – Öryggi - Umhverfi
  • Viðhorf starfsfólks
  • Skýrar starfslýsingar
  • Að þekkja hlutverk sitt og að þekkja hlutverk annarra

Hæfniviðmið

Að auka starfsgleði og jákvæð viðhorf á vinnustaðnum

Að öðlast hugmyndir og færni til að efla vinnustaðinn

Að öðlast innsýn inn í vinnuverndarhugsun og sjónarhorn gæðastjórnunar

Fyrirkomulag

Fyrirlestur

Helstu upplýsingar

  • Tími
    30. september 2025 kl. 09.00 - 12.00 Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst
  • Lengd
    3 klst.
  • Umsjón
    Guðrún Ólafsdóttir, M.Sc. í viðskiptafræði
  • Staðsetning
    Endurmenntun Háskóla Íslands, Dunhagi 7, 107 Reykjavík
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Öll, en ekki síst gæðastjórar, öryggisstjórar, mannauðsstjórar og stjórnendur, sem vilja hlúa að góðri vinnustaðamenningu, ýta undir gleði og góða samvinnu
  • Gott að vita
    Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga rétt hjá samstarfssjóðum Starfsmenntar verða afskráð en geta skráð sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en þátttakandi hefur fengið staðfestingarpóst frá Endurmenntun HÍ.
Skráning á þetta námskeið hefst 05. 08 2025 kl 09:00
  • Mat
    Mæting
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
30.09.2025Líðan, heilsa og öryggi starfsfólks09:0012:00Guðrún Ólafsdóttir