Upplýsinga- og skjalastjórn

Fjallað verður stuttlega um sögu og þróun upplýsinga- og skjalastjórnar á Íslandi. Fjallað verður um markmið með upplýsinga- og skjalastjórn og tengsl fagsviðsins við stjórnun þekkingar og gæða. Farið verður í íslensk lög og reglugerðir er varða stjórnun upplýsinga og alþjóðlegan staðal um skjalastjórn, ISO 15489. 

Farið verður í flokkun skjala og ólík skjalaflokkunarkerfi, málalykla, geymslu og grisjunaráætlun, skjalavistunaráætlun fyrir virk og óvirk skjöl og loks unnið verkefni um skjalatalningu. Lögð verður áhersla á skipulag málasafna, bókhaldsgagna, ljósmynda, teikninga, eyðublaða og kynningarefnis svo og gagna í mismunandi formi. Sýnt verður fram á hvernig hægt er að nota ýmis konar hugbúnað við skipulagningu gagna, skráningu, vistun og endurheimt. Fjallað verður stuttlega um öryggisáætlanir fyrir skjöl og pökkun skjala. Lögð er áhersla á að námskeiðið henti öllu starfsfólki sem hefur með málaflokkinn að gera innan síns vinnustaðar og að tengja námsefni við raunveruleg dæmi og verkefni sem nýtast þátttakendum í starfi. 


Námskeiðið er fjarkennt í stakar tölvur þátttakenda utan höfuðborgarsvæðisins í gegnum fjarfundarkerfið Adobe connect.

Námskeiðið er án endurgjalds fyrir félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar.

Námsþættir:
  • Stjórnun þekkingar.
  • Tengsl við gæðastjórnun
  • Skjalastjórn - skipulag skjalamála.
  • Skjöl, skjalasafn og skjalasafnsmyndari.
  • Tilgangur og markmið með skjalastjórn.
  • Málasafn og málalykill.
  • Staðla- og reglugerðarumhverfi.
  • Þjóðskjalasafn - reglur og leiðbeiningar.
  • Ómissandi, mikilvæg og gagnleg skjöl.
  • Ljósmyndir, teikningar og eyðublöð.
  • Handbækur.
  • Ragræn skjalastjórnun.
  • Geymslu-, grisjunar- og skjalavistunaráætlun.
  • Skjalaflokkunarkerfi - málalyklar.
  • Skjalabúnaður og pökkun skjala.
  • Öryggismál skjala.
  • Innleiðingarferli og mælingar.​

Hæfniviðmið

Aukin skilvirkni við upplýsinga- og skjalastjórn.

Aukinn skilningur á gildi upplýsinga- og skjalastjórnar fyrir gæðastjórnun og rekstur.

Fyrirkomulag

Fyrirlestrar, umræður og verkefni. 
Námskeiðið er fjarkennt í stakar tölvur þátttakenda utan höfuðborgarsvæðisins.



Helstu upplýsingar

  • Tími
    23. nóvember kl. 13:00 - 16:00 og 24. nóvember kl. 9:00 - 16:00.
  • Lengd
    6 klst.
  • Umsjón
    Ragna Kemp Haraldsdóttir, doktorsnemi í upplýsingastjórnun.
  • Staðsetning
    Dunhagi 7, 107 Reykjavík.
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    12.000 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Námið hentar öllum sem vilja hagnýta þekkingu á upplýsinga- og skjalastjórnun.
  • Gott að vita
    Kennt er eftir hádegi á mánudegi og fyrir hádegi á þriðjudegi.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Til þess að útskrifast af námskeiði þarf 90% mætingu og virka þátttöku í tímum.
  • Tengiliður námskeiðs
    Björg Valsdóttir
    bjorg(hjá)smennt.is
    550 0060

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
23.11.2015Upplýsinga- og skjalastjórn13:0016:00Ragna Kemp Haraldsdóttir
24.11.2015Upplýsinga- og skjalastjórn09:0012:00Ragna Kemp Haraldsdóttir