Skatturinn | 8 lyklar að árangursríkum tölvupóstsamskiptum
Fjallað er um alla helstu lykilþætti sem þarf að hafa í huga í tölvupóstsamskiptum. Einnig er fléttað inn í námskeiðið samskiptum í gegnum netspjall.
Þátttakendur fá rafbókina 8 lyklar að árangursríkum tölvupóstsamskiptum (2015) Nánari upplýsingar um bókina má sjá www.gerumbetur.is.
Hæfniviðmið
Að spara tíma.
Að auka afköst.
Að efla rafræna þjónustu gangvart viðskiptavinum og samstarfsfólki.
Að auka öryggi í samskiptum og fagmennsku.
Fyrirkomulag
Námskeiðið er byggt upp með leiknum myndböndum, krossaspurningum og verkefnum og gátlista fyrir eigin tölvupóstsamskipti.
Námskeiðið er opið í fjórar vikur og fjórum vikum eftir námskeiðslok fá þátttakendur sendan tölvupóst með áminningu um mikilvæga þætti í tölvupóstsamskiptum.
Helstu upplýsingar
- Tími22. nóvember 2023. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst.
- Lengd10 klst.
- UmsjónMargrét Reynisdóttir, M.Sc. í stjórnun og stefnumótun og M.Sc. í alþjóða markaðsfræði.
- StaðsetningVefnám utan rauntíma sem hægt er að nálgast hvar og hvenær sem er á námstímanum (22.11 - 20.12).
- TegundVefnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurStarfsfólk hjá Skattinum
- Gott að vitaNámskeiðið stendur starfsmönnum Skattsins til boða án kostnaðar og skerðir ekki einstaklingsrétt.
- MatSkila þarf verkefnum fjórum vikum eftir að námskeið hefst
- Ummæli
Takk fyrir skemmtilegt og fræðandi námskeið.
– Björn Ingi Jósefsson, starfsmaður hjá Ríkisskattstjóra.
Þetta var virkilega gott, aðgengilegt til að vinna og gerir mann gagnrýnan á sjálfan sig varðandi tölvupóstsamskipti.
– Ólöf Harðardóttir, skrifstofumaður hjá Úrskurðarnefnd umhverfis-og auðlindamála
Þetta er námskeið sem ég hvet aðra til að taka.
– Sigurlaug Lára Ingimundardóttir, ráðgjafi hjá Íbúðalánasjóði
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
Dagskrá
| Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
|---|---|---|---|---|
| 22.11.2023 | 8 lyklar að árangursríkum tölvupóstsamskiptum | 23:59 | 23:59 | Margrét Reynisdóttir |