Bókhald - grunnur - Promennt, vefnám

Helstu kennslugreinar:

Excel upprifjun fyrir bókhald grunn

Verslunarreikningur - upprifjun og æfingar

Rifjuð er upp einföld talnameðferð s.s. almenn brot, tugabrot, jöfnur og hlutföll. Helstu vaxtaformúlur kynntar og æfingadæmi reiknuð, einnig eru helstu vaxtahugtök útskýrð með dæmum og æfingum. Vísitölur og verðtryggingar eru kynntar og meðferð þeirra útskýrð. Raðgreiðslur greiðslukorta. 

Virðisaukaskattur - reglur, skil og öll meðferð vsk

Farið yfir allar helstu reglur um vsk. útreikning og útfyllingu skilagreina. Farið yfir hvað telst vsk.skyldur kostnaður og hvað ekki, helstu undanþágur ofl.

Bókhaldsgrunnur og handfært bókhald

Áður en farið er í tölvubókhaldið verður að læra grunnatriðin. Kennd er undirstaða bókhalds þar sem helstu reikningar eru teknir fyrir og verkefni færð í dagbók. Afstemming með prófjöfnuði. Gerð einfalds rekstrar og efnahagsreiknings. Lestur ársreikninga og lykiltölur.

Tölvubókhald

Áður en farið er í tölvubókhaldið verður að læra grunnatriðin. Kennd er undirstaða bókhalds þar sem helstu reikningar eru teknir fyrir og verkefni færð í dagbók. Afstemming með prófjöfnuði. Kynnt eru innkaupa- og sölukerfið.  Gerð einfalds rekstrar og efnahagsreiknings. Lestur ársreikninga og lykiltölur. Nemendum er boðið upp á að velja annars vegar DK fjárhagsbókhald og hins vegar Navision með þeim fyrirvara að næg þátttaka náist á bæði námskeiðin (þá er kennt á Microsoft Dyn. Nav).

Athugið að Starfsmennt greiðir einu sinni fyrir hvern félagsmann á hvert námskeið. 

Nái félagsmaður ekki að ljúka námskeiði sem Starfsmennt hefur greitt fyrir hann og hyggst endurtaka það er bent á starfsmenntasjóði stéttarfélaga.

Hæfniviðmið

gert grein fyrir grundvallarhugtökum tvíhliða bókhalds.

notað þá leikni sem hann hefur öðlast á námskeiðinu til færa einfaldar dagbókarfærslur.

reiknað út og fært fyrningu og afskriftir eigna.

gert upp inn- og útskatt og fært á uppgjörsreikning vsk ásamt því að gera vsk skýrslu.

fært gjöld og tekjur á rekstrarreikning og hagnað eða tap yfir á eigið fé.

gert upp og stemmt af efnahagsreikning.

gert grein fyrir bókhaldshringrásinni og tengslum ýmissa reikninga.

Fyrirkomulag

Vefnám

Helstu upplýsingar

  • Tími
    15. mars 2021
  • Lengd
    100 klst.
  • Staðsetning
    Vefnám
  • Tegund
    Fjarnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Aðildarfélagar Starfsmenntar sem vilja læra að færa bókhald.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Ekki eru lögð fyrir formleg próf en mikil áhersla er lögð á að leiðbeinandi og þátttakendur fari sem oftast yfir það sem hefur áunnist til að ýta undir stöðugar framfarir.
  • Tengiliður námskeiðs
    Björg Valsdóttir
    bjorg(hjá)smennt.is
    5500060

Dagskrá

DagsetningDagskráKennari
15.03.2021Grunnnám í bókhaldi