Þjónustustjórnun - hagnýt lykilatriði

Góð þjónustustjórnun hjá fyrirtækjum og stofnunum er lykillinn að ánægju viðskiptavina og stuðlar að samkeppnishæfni og jákvæðri aðgreiningu. Þjónustustjórnun er þörf til að tryggja að ekki verði þjónustufall með tilheyrandi kostnaði.

Á námskeiðinu er farið yfir 10 hagnýt lykilatriði (þ.á.m. þróun þjónustutilboðs og þjónustumenningar) sem varpa ljósi á kjarna málsins í þjónustustjórnun og þátttakendur geta strax nýtt sér í vinnu sinni og starfsþróun. Fyrir hvert lykilatriði er bent á grundvallarhugtök og verkfæri til hagnýtingar. Einnig verður fjallað um leiðir til að greina gæði þjónustu og forgangsraða úrbótaþáttum.

Hæfniviðmið

Að skilja kjarna hugtaka í þjónustustjórnun og tengingu þeirra við starfsemi fyrirtækja/stofnana

Að geta greint og forgangsraðað lykilþáttum í þjónustu sem skipta máli fyrir viðskiptavini

Að kunna að beita hagnýtum aðferðum til að bæta þjónustugæði

Fyrirkomulag

Fyrirlestur og umræður. Gagnlegt er að þátttakendur hafi með sér fartölvu en það er ekki skilyrði. Ekki er þörf á aðkeyptu kennsluefni. Þátttakendur gætu haft gagn af því að sækja námskeiðið 2-3 saman frá sama vinnustað og ræða um reynslu sína af þjónustu og þjónustuveitingu í samhengi við námsefnið.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    12. og 13. mars 2026 kl. 08.30 - 12.00. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst
  • Lengd
    7 klst.
  • Umsjón
    Dr. Runólfur Smári Steinþórsson og Dr. Þórhallur Örn Guðlaugsson, prófessorar við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands
  • Staðsetning
    Endurmenntun Háskóla Íslands, Dunhagi 7, 107 Reykjavík
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Öll sem veita þjónustu, hvort heldur sem er í fyrirtækjum, stofnunum eða félagasamtökum. Námskeiðið er mjög gagnlegt fyrir þau sem eru í forystu fyrir þróun þjónustu og bera ábyrgð á þjónustugæðum
  • Gott að vita

    Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum Starfsmenntar verða afskráð en geta skráð sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en þátttakandi hefur fengið staðfestingarpóst frá Endurmenntun HÍ.

  • Mat
    Mæting og þátttaka
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
12.03.2026Þjónustustjórnun - hagnýt lykilatriði08:3012:00Runólfur Smári Steinþórsson og Þórhallur Örn Guðlaugsson
13.03.202608:3012:00