Topp símaþjónusta og samskiptafærni
Aukin fagmennska í þjónustu og samskiptum í síma
Á þessu námskeiði er fjallað er um hvernig er hægt með aukinni fagmennsku að auka gæði þjónustu í samskiptum í síma og gera þau um leið hnitmiðaðri.
Kennd eru ýmis gagnleg ráð til að byggja upp traust í símtölum, stýra erfiðum aðstæðum af öryggi og skila betri upplifun viðskiptavina, í hverju einasta símtali.
Með námskeiðinu fylgir bókin Topp símaþjónusta sem er hagnýt og aðgengileg bók með dæmum, ráðum og verkfærum sem efla menningarnæm samskipti.
Hæfniviðmið
Að geta stýrt samtölum og stytt þau með markvissum hætti
Að kunna að forðast algeng mistök í þjónustusímsvörun
Að geta stýrt erfiðum aðstæðum í síma á lausnamiðaðan hátt með jákvæðni og öryggi
Fyrirkomulag
Námskeiðið er byggt upp með leiknum myndböndum, krossaspurningum og verkefnum.
Námskeiðið er opið í fjórar vikur og fjórum vikum eftir námskeiðslok fá þátttakendur sendan tölvupóst með áminningu um mikilvæga þætti í þjónustusímsvörun.
Helstu upplýsingar
- Tími15. október 2025. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst.
- Lengd10 klst.
- UmsjónMargrét Reynisdóttir, M.Sc. í stjórnun og stefnumótun og M.Sc. í alþjóða markaðsfræði.
- StaðsetningVefnám utan rauntíma sem hægt er að nálgast hvar og hvenær sem er á námstímanum.
- TegundVefnám
- Verð24.500 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurÖll sem sinna símaþjónustu og vilja efla samskiptahæfni sína og auka gæði þjónustu.
- MatSkila verkefnum 4 vikum eftir að námskeið hefst.
- Ummæli
Mér fannst námskeiðið mjög gagnleg og skemmtileg. Eins var gott að vinna þau rafrænt og fá að velja þann tíma sem hentar.
– Kolbrún Sigmundsdóttir
Þetta er námskeið sem ég hvet aðra til að taka.
– Sigurlaug Lára Ingimundardóttir, ráðgjafi hjá Íbúðalánasjóði
Mjög gott námskeið og ég sé líka að ég hef eitthvað gert rétt í gegnum árin en alltaf má bæta sig.
– Brynhildur Baldursdóttir
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
Dagskrá
| Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
|---|---|---|---|---|
| 15.10.2025 | Topp símaþjónusta og samskiptafærni | 00:00 | 10:00 | Margrét Reynisdóttir |