Fagnám í umönnun fatlaðra - MSS
Breyttar áherslur í starfi með fólki með fötlun kalla á aukna fagmennsku og markvissa starfsþróun þannig að starfsfólk geti veitt framsækna og metnaðarfulla þjónustu.
Námið miðar að því að auka færni og þekkingu á aðstæðum og þörfum fólks með fatlanir í því skyni að efla lífsgæði þeirra og virkni. Þar er lögð áhersla á sjálfseflingu, lífsgæði og réttindi fólks með fatlanir.
Námið er skipulagt í samræmi við námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins. Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur samþykkt að meta megi námið til allt að 16 eininga á framhaldsskólastigi.
Aðeins félagsfólk aðildarfélaga Starfsmenntar getur skráð sig á námskeiðið hér, aðrir verða að skrá sig hjá MSS.
Hæfniviðmið
Að auka færni og þekkingu námsmanna á aðstæðum og þörfum fatlaðs fólks til að efla lífsgæði þeirra og virkni.
Fyrirkomulag
Það er bæði hægt að taka námið fjarnámi og staðnámi. Í fjarnámi fer það fram í Microsoft Teams en í staðnámi í húsnæði MSS, Krossmóa 4a, 3. hæð, 230 Reykjanesbæ. Engin lokapróf eru en lögð er áhersla á verkefnavinnu, verklegar æfingar, hópavinnu, umræður og rökræður.Helstu upplýsingar
- TímiNámstíminn er frá 18. september til 14. desember 2023.
- Lengd324 klst.
- UmsjónNanna Bára Maríasdóttir og Hólmfríður Karlsdóttir
- StaðsetningReykjanesbær
- TegundFjarnám
- VerðÁn kostnaðar
- MarkhópurNámið er ætlað þeim sem starfa eða vilja starfa við umönnun fatlaðra. Í því felst að vinna við þjónustu á heimilum og stofnunum fyrir fólk með fatlanir. Það getur einnig hentað þeim sem vinna með börnum eða unglingum í vanda eða í þjónustu við aldraða og sjúka.
- Tengiliður námskeiðsBjörg Valsdóttirbjorg(hjá)smennt.is550 0060
- MatVerkefnaskil og 80%mætingarskylda og virk þátttaka.
Gott að vita
Námið er kennt á Teams og í húsnæði MSS.
Eingöngu félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar geta skráð sig á námskeiðið.
Aðrir verða að skrá sig hjá MSS.
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Kennari |
---|---|---|
18.09.2023 | Fagnám í umönnun fatlaðra | Ýmsir sérfræðingar |