Þjónustugæði – 5 þættir sem þú getur nýtt þér strax
Hvernig getum við aukið þjónustugæði?
Þjónustugæði byggjast oft á litlum en mikilvægum atriðum. Framkoma, viðbrögð og samskipti geta haft stór áhrif á upplifun viðskiptavina og samstarfsfólks.
Þetta stutta og hagnýta rafræna námskeið fjallar um fimm lykilþætti þjónustugæða og hvernig þeir birtast í daglegu starfi. Efnið er sett fram í kennslumyndbandi með leiknum dæmum úr raunverulegum aðstæðum. Þar má sjá bæði góða og síður góða þjónustu og hvernig mismunandi viðbrögð geta breytt upplifuninni.
Með námskeiðinu fylgir verkefnapakki sem hjálpar þér að tengja efnið við eigið starf. Þar gefst tækifæri til að ígrunda eigin vinnubrögð og prófa einfaldar aðferðir sem geta styrkt samskipti og þjónustu.
Tveimur vikum eftir að opnað hefur verið fyrir námsefni námskeiðis færð þú stuttan eftirfylgnipóst sem minnir á lykilatriðin og hvetur til áframhaldandi þróunar í starfi. Þannig festist lærdómurinn betur í sessi og verður hluti af daglegum vinnubrögðum.
Efnistök:
- Fimm lykilþættir góðrar þjónustu
- Samskipti og framkoma í þjónustuhlutverki
- Dæmi um góða og síður góða þjónustu
- Hvernig lítil atriði geta haft stór áhrif á upplifun viðskiptavina
- Ígrundun og verkefni sem tengjast eigin starfi
- Eftirfylgni sem styður við varanlegar breytingar
Hæfniviðmið
Að öðlast skýran skilning á helstu þáttum þjónustugæða og hvernig þeir geta nýtt þá í daglegu starfi
Að efla öryggi í samskiptum og styðja við jákvæða þjónustuupplifun
Fyrirkomulag
16.apríl hefur kennari samband og veitir þér aðgang að lokuðu námssvæði, þar er að finna myndband og annað kennsluefni. Aðgangur verður opinn í 3 vikur en þú getur unnið námsefnið á þínum hraða og valið hversu djúpt þú ferð í verkefnin.
Helstu upplýsingar
- Tími16. apríl 2026. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst
- Lengd2 klst.
- UmsjónMargrét Reynisdóttir, M.Sc. í stjórnun og stefnumótun og M.Sc. í alþjóða markaðsfræði
- StaðsetningVefnám utan rauntíma sem hægt er að nálgast hvar og hvenær sem er á námstímanum
- TegundVefnám
- Verð15.500 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurÖll sem sinna þjónustu, bæði í framlínu og innri þjónustu. Það nýtist einnig teymum og vinnustöðum sem vilja efla sameiginleg vinnubrögð og styrkja þjónustumenningu
Dagskrá
| Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
|---|---|---|---|---|
| 16.04.2026 | Þjónustugæði – 5 þættir sem þú getur nýtt þér strax | 00:00 | 02:00 | Margrét Reynisdóttir |