Árangursrík samskipti í þjónustu
Í þremur örþjálfunarmyndböndum sýnir Örn Árnason leikari á skemmtilegan hátt hvernig líkamstjáning og raddbeitingin hafa áhrif á hvort samskipti þín séu árangursrík.
Myndböndin þrjú eru eftirfarandi:
- Góð samskipti byrja hjá okkur sjálfum.
- Breytir raddbeiting merkingu orða?
- Hlusta með augunum.
Námskeiðið nýtist jafnt í samskiptum við viðskiptavini og samstarfsfólk hvort sem það er á netinu eða augliti til auglitis.
Með námskeiðinu fylgir bókin Árangursrík líkamstjáning í þjónustu – hagnýt, skýr bók um áhrif líkamstjáningar og raddbeitingar í faglegum samskiptum og þjónustu, beintengd íslenskum aðstæðum.Hæfniviðmið
Að skilja mikilvægi líkamstjáningar og raddbeitingar í árangursríkum samskiptum
Að átta sig á mikilvægi samskiptatækni í virkri hlustun
Að vita að jafnvel lítil atriði í samskiptatækni þinni geta haft mikil áhrif á upplifun annarra
Að styrkja öryggi í samskiptum og fagmennsku
Fyrirkomulag
Námskeiðið er byggt upp með leiknum myndböndum og verkefnum.
Námskeiðið er opið í fjórar vikur.
Helstu upplýsingar
- Tími28. nóvember 2025
- Lengd12 klst.
- UmsjónMargrét Reynisdóttir, M.Sc. í stjórnun og stefnumótun og M.Sc. í alþjóða markaðsfræði.
- StaðsetningVefnám utan rauntíma sem hægt er að nálgast hvar og hvenær sem er á námstímanum
- TegundVefnám
- Verð29.500 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurÖll sem vilja auka árangur í samskiptum
- MatSkila þarf verkefnum fjórum vikum eftir að námskeið hefst.
- Ummæli
Námskeiðin þín hafa vakið mann til umhugsunar um hvað maður gerir rétt og hvað má bæta. Það hefur að sjálfsögðu virkað í símsvörun og svo þetta nýjast í víðari skilningi. Brosum og það skilar sér 😊
– Ólöf Harðardóttir
I am thoroughly enjoying everything about this course.
– Erzsebet Iren Szucs
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
Dagskrá
| Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
|---|---|---|---|---|
| 28.11.2025 | Árangursrík samskipti í þjónustu. | 00:00 | 12:00 | Margrét Reynisdóttir |