Skálatún | Skyndihjálp I kl. 15 - 18

Það er mikilvægt að geta brugðist rétt við þegar slys verður á vinnustað. Hér er farið yfir almenna skyndihjálp og þau atriði sem hafa ber í huga þegar unnið er með fötluðum. 

Námskeiðin í skyndihjálp eru þrjú. Á fyrsta námskeiðinu, Skyndihjálp I, er fjallað um meginatriði og grundvallarreglur skyndihjálpar, endurlífgun og aðskotahlut í öndunarvegi með sérstaka áherslu á t.d fólk í hjólastólum. Einnig er fjallað um viðbrögð við flogaveikiskasti og meðvitundarleysi.

Þegar fólk hefur lokið Skyndihjálp I  II og III hefur það lokið grunnnámskeiði í skyndihjálp.

Hæfniviðmið

Að þátttakendur öðlist grunnfærni í að beita skyndihjálp og sálrænum stuðningi í neyðartilvikum.

Fyrirkomulag

Umræður, fyrirlestur og verklegar æfingar

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Fimmtudagur 2. mars kl. 15:00 - 18:00
  • Lengd
    3 klst.
  • Umsjón
    Laufey Gissurardóttir , leiðbeinandi í skyndihjálp og þroskaþjálfi.
  • Staðsetning
    Skálatún, Skálahlíð 11a, 270 Mosfellsbær
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Starfsfólk Skálatúns
  • Gott að vita
    Námskeiðið er aðeins ætlað þeim sem boðaðir hafa verið á það.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting og þátttaka
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
02.03.2023Skyndihjálp I15:0018:00Laufey Gissurardóttir