Fyrirmyndar skjalastjórn - aðferðir og hagnýt ráð

Góð skjalastjórnun er einn þeirra þátta sem stuðla að skipulegri stjórnun fyrirtækja og stofnana þannig að starfsemin sé rekin á hagkvæman og ábyrgan hátt.

Á námskeiðinu verður fjallað um lagaumhverfi í skjalastjórn á Íslandi og hvernig skjalastjórn tengist mikilvægum málefnum á vinnustöðum eins og rekjanleika gagna og ákvarðana ásamt tengslum þekkingar og gæða og þekkingarstjórnunar.

Jafnframt verður fjallað um mismunandi tegundir skjala og meðhöndlun þeirra sem og gerð eftirfarandi: skjalastefnu, skjalavistunaráætlunar, málalykils, skjalakerfis og lýsigagna. Auk þess verða rafræn skil tekin fyrir.

Á námskeiðinu er fjallað um

  • Greiningu gagna
  • Innleiðingu og hönnun skjalakerfis. Kostir og gallar
  • Þroskastig í skjalastjórn
  • Mismunandi meðhöndlun skjala, s.s. tölvupóstur, pappír, teikningar, ljósmyndir, bækur og skýrslur
  • Þekkingarstjórnun, þ.e.a.s. að þekking sé ekki falin hjá einstaka starfsmönnum
  • Hlutverk héraðskjalasafna og Þjóðskjalasafns Íslands
  • ISO 15489 alþjóðlegur staðall um skjalastjórn
  • Rafræn skil, grisjun, skráning og pökkun og skjalageymslur

Hæfniviðmið

Að geta notað fjölbreyttar leiðir við greiningu gagna

Að geta metið kosti og galla við hönnun og innleiðingu skjalakerfis

Að geta gert grein fyrir þroskastigi í skjalastjórn

Að geta notað ólíkar leiðir við meðhöndlun skjala, s.s. tölvupóstur, pappír, teikningar, ljósmyndir, bækur og skýrslur

Að geta beitt þekkingarstjórnun, þ.e.a.s. að þekking sé ekki falin hjá einstaka starfsmönnum

Að geta gert grein fyrir hlutverki héraðskjalasafna og Þjóðskjalasafns Íslands

Að geta útskýrt ISO 15489 alþjóðlegan staðal um skjalastjórn

Að geta útskýrt virkni rafrænna skila, grisjunar, skráningu, pökkun og skjalageymslum

Fyrirkomulag

Fyrirlestrar, umræður og létt verkefnavinna

Helstu upplýsingar

  • Tími
    30. september og 2. október 2024 kl. 09.00 - 12.00 Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst
  • Lengd
    6 klst.
  • Umsjón
    Þorgerður Magnúsdóttir, gæðastjóri hjá FSRE, MIS í upplýsingafræði og CIP vottuð og Eva Ósk Ármannsdóttir, skjala- og upplýsingastjóri hjá FSRE, BA í upplýsingafræði og diplóma í jákvæðri sálfræði.
  • Staðsetning
    Vefnám á rauntíma, kennt á Zoom
  • Tegund
    Streymi
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Fyrir þau sem vinna með stjórnun gagna á sínum vinnustað, s.s. vistun, skráningu og pökkun. Ekki er gert ráð fyrir að þátttakendur hafi lokið formlegu námi í skjalastjórn
  • Gott að vita
    Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga rétt hjá samstarfssjóðum Starfsmenntar verða afskráð en geta skráð sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en þátttakandi hefur fengið staðfestingarpóst frá Endurmenntun HÍ.
Skráning á þetta námskeið hefst 05. 08 2025 kl 09:00
  • Mat
    Mæting, þátttaka
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
30.09.2025Fyrirmyndar skjalastjórn - aðferðir og hagnýt ráð09:0012:00Þorgerður Magnúsdóttir og Eva Ósk Ármannsdóttir
02.10.2025Fyrirmyndar skjalastjórn - aðferðir og hagnýt ráð09:0012:00Sömu kennarar