Verkefnastjórnun - fyrstu skrefin
Á námskeiðinu er farið í grunninn á verkefnastjórnun sem og hvað verkefnastjórnun er og hvar hún getur nýst. Áhersla er á undirbúning og eftirfylgni verkefna til að tryggja árangur. Námskeiðið veitir heildarsýn á uppbyggingu verkefna og hvernig hægt er að beita verkefnastjórnun á lítil sem stór verkefni.
Á námskeiðinu er fjallað um:
• Skilgreiningu á hvað er verkefni og hvað er verkefnastjórnun.
• Undirbúning verkefna og ræs.
• Hvernig skilgreina á markmið verkefna og hvernig árangur er metinn.
• Uppsetning verkefnis: Hvernig tíma- og kostnaðaráætlanir líta út.
• Eftirfylgni verkefnisáætlunar.
• Skil og lúkning verkefna.
Hæfniviðmið
Að auka skiling á verkefnastjórnun og leiðum til betri árangurs og þróa hæfni í að taka við verkefnum og leysa þau.
Fyrirkomulag
Kennsla fer fram með fyrirlestrum og umræðum. Tekin verða fyrir hagnýt og raunveruleg verkefni sem flestir ættu að geta samsvarað sig við.Helstu upplýsingar
- TímiÞriðjudagur 26. október frá kl. 13:00 - 17:00
- Lengd4 klst.
- UmsjónSveinbjörn Jónsson M.Sc. í verkfræði og MPM.
- StaðsetningEndurmenntun Háskóla Íslands, Dunhagi 7, 107 Reykjavík
- TegundFjarnám
- VerðÁn kostnaðar
- MarkhópurFélagsmenn Starfsmenntar sem vilja kynnast aðferðfræði verkefnastjórnunar.
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacrocesmennt(hjá)smennt.is
- MatMæting
Gott að vita
Eingöngu félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar geta skráð sig hér á námskeiðið.
Aðrir verða að skrá sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands.
Sæti á námskeiðin teljast ekki 100% örugg fyrr en Starfsmennt hefur breytt stöðu skráningar úr “nýr” í “samþykkt”, póstur verður sendur á þáttakendur þess efnis viku áður en námskeiðið hefst.
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Kennari |
---|---|---|
26.10.2021 | Verkefnastjórnun - fyrstu skrefin - Vefnám | Sveinbjörn Jónsson |