SSH | Skyndihjálp I
Það er mikilvægt að geta brugðist rétt við þegar slys verður á vinnustað. Hér er farið yfir almenna skyndihjálp og þau atriði sem hafa ber í huga þegar unnið er með fötluðum.
Námskeiðin í skyndihjálp eru þrjú. Á þessu fyrsta námskeiði, Skyndihjálp I, er fjallað um meginatriði og grundvallarreglur skyndihjálpar, endurlífgun og aðskotahlut í öndunarvegi með sérstaka áherslu á t.d fólk í hjólastólum. Einnig er fjallað um viðbrögð við flogaveikiskasti og meðvitundarleysi.
Þegar starfsfólk hefur lokið Skyndihjálp I, II og III hefur það lokið grunnnámskeiði í skyndihjálp.
Hæfniviðmið
Að geta beitt grunnfærni í skyndihjálp og sálrænum stuðningi í neyðartilvikum
Fyrirkomulag
Umræður, fyrirlestur og verklegar æfingarHelstu upplýsingar
- Tími3. september 2025 kl. 13.00 - 16.00. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst
- Lengd3 klst.
- UmsjónLaufey Gissurardóttir , leiðbeinandi í skyndihjálp og þroskaþjálfi.
- StaðsetningHúsnæði Starfsmenntar, Skipholti 50 b, 3. hæð, 105 Reykjavík
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurAðeins fyrir starfsfólk sem starfar að málefnum fatlaðs fólks í Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Garðabæ, Seltjarnarnesi, Andrastöðum á Kjalarnesi. Æskilegt er að starfsfólk sæki um SSH námskeiðin í samráði við sína yfirmenn
- Gott að vitaSkráðir þátttakendur eru vinsamlegast beðnir um að láta vita ef þeir sjá ekki fram á að komast á námskeiðið. Hægt er að afskrá sig á “mínar síður”, hafa samband á smennt@smennt.is eða í s: 550 0060
Skráning á þetta námskeið hefst 05. 08 2025 kl 09:00
- MatMæting
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
03.09.2025 | Skyndihjálp I | 13:00 | 16:00 | Laufey Gissurardóttir |