Dómstólasýslan | SharePoint

SharePoint er öflugt samvinnu-verkfæri frá Microsoft sem nota má til að halda utan um og vinna með efni og upplýsingar eins og skjöl, gagnalista, vefsíður og verkefni og jafnvel myndir eða  myndbönd.  
Námskeiðinu er ætlað að gera þátttakendur að öruggum notendum í SharePoint umhverfinu. Þú kynnist ítarlega helstu virkni kerfisins sem almennir notendur þurfa að þekkja.
Efnistök eru brotin niður í smærri einingar með textapistlum, kennslumyndböndum og léttum æfingum. Nemendur hafa góðan stuðning frá kennara og efnistökum verður bætt við út frá fyrirspurnum nemenda. 

Efnistök:

  • Notendaviðmót.
  • SharePoint svæði, vefpartar og stillingar (News, links, events).
  • Samhæfing skjala.
  • Að búa til skjalasöfn og lista.
  • Tegundir lista.
  • Deiling á gögnum.
  • Skjalasýn.
  • Útgáfusaga.
  • Stillingar skjalasafna.
  • Office og SharePoint.
  • Að búa til síður (e.Pages), skjalasöfn og lista.
  • Leit í Sharepoint.
  • OneDrive, Office & SharePoint. 

Hæfniviðmið

Að kynnast og læra á virkni SharePoint til almennra nota

Fyrirkomulag

Vefnámskeið sem er opið í 3 vikur og hægt er að stunda hvar og hvenær sem er. Á fyrsta degi veitir kennarinn þér aðgang að rafrænu netskólakerfi þar sem námsefnið er aðgengilegt. Hann er þér innan handar í gegnum tölvupóst, vefspjall eða þjónustusíma.

Nánari upplýsingar um námskeiðið fást hjá kennara í síma 788 8805 milli kl. 10 – 20 virka daga eða í gegnum netfangið kennari(hjá)nemandi.is

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Skráning er opin til 20. maí en upphafið er valfrjálst.
  • Lengd
    12 klst.
  • Umsjón
    Bjartmar Þór Hulduson, tölvukennari
  • Staðsetning
    Vefnám utan rauntíma sem hægt er að nálgast hvar og hvenær sem er á námstímanum
  • Tegund
    Vefnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Öll sem vilja kynnast samvinnu-verkfærinu SharePoint
  • Mat
    Áhorf og verkefnaskil
  • Ummæli
  • Soffía G. Santacroce

  • Tengiliður námskeiðs
    Soffia Santacroce

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
20.05.2024SharePoint23:5923:59Bjartmar Þór Hulduson