SSH - Líkamsbeiting

Sýnt hefur verið fram á að líkamleg álagsmein eru meðal algengustu orsaka þess að fólk er frá vinnu í lengri eða skemmri tíma. Talið er að hægt sé að koma að mestu leyti í veg fyrir heilsuskaða af því tagi með forvörnum og fræðslu um rétta líkamsbeitingu við vinnu.

Efni námskeiðs

  • Helstu atriði er varða stoðkerfi líkamans, uppbygging hryggjar og líkamsstöðu.
  • Helstu áhættuþættir fyrir álagseinkennum við vinnu.
  • Vinnustöður/líkamsbeiting. Hvað er æskilegt, hvað ekki og af hverju.
  • Kennslan verður brotin upp með sýnikennslu og einföldum verklegum æfingum í beitingu líkamans.

Hæfniviðmið

Aukin þekking á stoðkerfi líkamans.

Aukin vitund um mikilvægi æskilegrar líkamsbeitingar.

Að þátttakendur geti tileinkað sér vinnustöður sem taldar eru æskilegar við störf þeirra.

AUkinn skilningur á áhrifum samvinnu og vinnuanda í vinnuhópum.

Fyrirkomulag

Umræður, fyrirlestur og verkefni.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    2. maí kl. 09.00-12:00.
  • Lengd
    3 klst.
  • Umsjón
    Guðný Jónsdóttir, sjúkraþjálfari MSc., sérfræðingur í taugasjúkraþjálfun og stöðustjórnun.
  • Staðsetning
    Húsnæði BSRB, Grettisgötu 89, 105 Reykjavík.
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Námskeiðið er aðeins ætlað þeim sem boðaðir hafa verið á það.
  • Gott að vita
    Námskeiðið er aðeins ætlað þeim sem boðaðir hafa verið á það.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce
    soffia@smennt.is
    5500060

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
02.05.2019Líkamsbeiting09:0012:00Guðný Jónsdóttir, sjúkraþjálfari MSc., sérfræðingur í taugasjúkraþjálfun og stöðustjórnun