Að lifa breytingar - breytingastjórnun

Samfélag nútímans einkennist af aukinni óvissu um framtíðina og sífellt örari breytingum. Það er því mikilvægt er vera undir þær búinn og vera opinn fyrir nýjum tækifærum sem þeim fylgir. 

Á námskeiðinu er farið yfir eðli breytinga og hvaða áhrif þær hafa á fólk og vinnustaði. Einnig eru kynnt ráð sem grípa má til í því skyni að auka árangur breytinga. 

Hæfniviðmið

Að geta gert grein fyrir áhrifum breytinga á fólk og vinnustaði

Að geta aukið árangur breytinga með ýmsum ráðum

Að geta gert breytingar að bærilegri lífsreynslu

Fyrirkomulag

Námskeiðið er vefnám á stafrænu formi sem gerir þátttakendum kleyft að fara yfir efnið á þeim stað og tíma sem hentar.

Eftir skráningu hjá Starfsmennt þarf að bíða eftir næsta virka degi, þá kemur póstur frá Opna Háskólanum í HR sem veitir aðgang að námssvæði námskeiðisins (kennslukerfi Opna háskólans).

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Skráning er opin til 8. apríl 2024 en upphafið er valfrjálst
  • Lengd
    2 klst.
  • Umsjón
    Dr. Þóranna Jónsdóttir, Ráðgjafi á sviði breytingastjórnunar og stjórnarhátta
  • Staðsetning
    Vefnám utan rauntíma sem hægt er að nálgast hvar og hvenær sem er á námstímanum
  • Tegund
    Vefnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Öll sem ganga í gegnum breytingar á sínum vinnustað, óháð því hvers konar breytingar um er að ræða.
  • Gott að vita

    Eingöngu félagsfólk aðildarfélaga Starfsmenntar getur skráð sig hér á námskeiðið. Félagsfólk BHM með aðild að Starfsþróunarsetri háskólamanna sem hyggst skrá sig á þetta námskeið verður að hafa samband við Starfsmennt. Aðrir skrá sig hjá Opna Háskólanum í HR.

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Áhorf
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
08.04.2024Að lifa breytingar - breytingastjórnun12:0012:00Dr. Þóranna Jónsdóttir