Verkefnastjórnun - verkefnisáætlun
Á námskeiðinu er farið yfir helstu hugtök og grunnatriði verkefnastjórnunar. Lögð er áhersla á gerð verkefnisáætlunar sem er grundvöllur að góðri verkefnastjórnun. Námskeiðið veitir heildarsýn á uppbyggingu verkefna og hlutverk verkefnastjórans.
Á námskeiðinu er fjallað um:
• Verkefnisgreiningar m.a. hagsmunaaðila- og áhættugreiningar.
• Árangursmælikvarða og markmiðasetningu.
• Sundurliðun verkefnis í verkþætti og gerð tíma- og kostnaðaráætlana.
• Stjórnskipulag verkefnis og samskipti.
• Ræs og lúkning verkefna.
Þetta námskeið er gott upphaf að undirbúningi fyrir IPMD D vottun og meira nám í verkefnastjórnun.
Hæfniviðmið
Að þróa hæfni til að leiða verkefni og vinna í verkefnum til betri árangurs og þróa hæfni til að vinna í hópi með raunveruleg verkefni.
Fyrirkomulag
Kennsla fer fram með fyrirlestrum og hópæfingum þar sem nemendur takast á við aðferðafræði og beita henni á raunveruleg dæmi.Helstu upplýsingar
- TímiMánudagur 2. og miðvikudagur 4. maí frá kl. 13:00 - 17:00
- Lengd8 klst.
- UmsjónSveinbjörn Jónsson M.Sc. í verkfræði og MPM. Samræmingarstjóri hjá Isavia.
- StaðsetningEndurmenntun Háskóla Íslands, Dunhagi 7, 107 Reykjavík
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurFélagsmenn Starfsmenntar sem vilja kynnast aðferðfræði verkefnastjórnunar
- Gott að vita
Eingöngu félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar geta skráð sig hér á námskeiðið.
Aðrir verða að skrá sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands.
Sæti á námskeiðin teljast ekki 100% örugg fyrr en Starfsmennt hefur breytt stöðu skráningar úr “nýr” í “samþykkt”, póstur verður sendur á þáttakendur þess efnis viku áður en námskeiðið hefst.
- MatMæting
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacrocesmennt(hjá)smennt.is5500060
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
02.05.2022 | Verkefnastjórnun - verkefnisáætlun | 13:00 | 17:00 | Sveinbjörn Jónsson |
04.05.2022 | Verkefnastjórnun - verkefnisáætlun | 08:30 | 12:30 | Sveinbjörn Jónsson |