Vellíðan starfsfólks

Vaxandi meðvitund er á vinnustöðum um mikilvægi þess að huga að vellíðan starfsfólks.

Á námskeiðinu verður fjallað um, frá sjónarhóli starfsfólks og vinnustaða, hvað felst í vellíðan starfsfólks.

Skoðaðir verða helstu þættir sem þarf að huga að til að starfsfólki líði vel í starfi með sérstaka áherslu á jafnvægi og samþættingu vinnu og einkalífs og sveigjanleika í starfi, mikilvægi félagslegra tengsla á vinnustöðum og hlutverk leiðtoga á vinnustöðum.

Rýnt verður í af hverju það skiptir máli að huga að vellíðan á vinnustöðum og ábyrgð stjórnenda sem og starfsfólks í því samhengi.

Leitað verður svara við spurningum á borð við:

  • Hvað er vellíðan í starfi, hvernig stuðlum við að vellíðan og hvað getur starfsfólkið sjálft gert til að vinna að eigin vellíðan?
  • Hvað þurfa stjórnendur að vera meðvitaðir um og hvaða áhrif hafa vinnustaðir á líðan starfsfólks?

Hæfniviðmið

Að þekkja helstu þætti sem stuðla að vellíðan í vinnu

Að þekkja leiðir til að vinna að eigin vellíðan í vinnu og/eða samstarfsfólks

Fyrirkomulag

Fyrirlestur, umræður

Helstu upplýsingar

  • Tími
    30. október 2025 kl. 09.00 - 12.00. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst
  • Lengd
    3 klst.
  • Umsjón
    Þóra Þorgeirsdóttir, doktor í mannauðsstjórnun
  • Staðsetning
    Vefnám í rauntíma, kennt á Zoom
  • Tegund
    Streymi
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Öll sem hafa áhuga á líðan á vinnustöðum, bæði stjórnendur sem eru með mannaforráð og þau sem vilja huga að eigin vellíðan
  • Gott að vita

    Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga rétt hjá samstarfssjóðum Starfsmenntar verða afskráð en geta skráð sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en þátttakandi hefur fengið staðfestingarpóst frá Endurmenntun HÍ.

Skráning á þetta námskeið hefst 05. 08 2025 kl 09:00
  • Mat
    Mæting og þátttaka
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
30.10.2025Vellíðan starfsfólks09:0012:00Þóra Þorgeirsdóttir