BVV - Launavinnsla - Vefnám - Kl. 13:00-14:30. Fullbókað.

Þetta námskeið er ætlað launafulltrúum hjá ríki, Reykjavíkurborg, sveitarfélögum og Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu. Sérstaklega eru launafulltrúar sem starfa með vaktavinnufólk hvattir til að koma á námskeiðið. Ef aðrir en þeir sem tilgreindir eru í markhópi námskeiðs skrá sig, verða þeir afskráðir.

Markmið námskeiðs er að launafulltrúar þekki lykilatriði launavinnslu og nýrra launamyndunarþátta tengt betri vinnutíma í vaktavinnu.

Á námskeiðinu verður meðal annars farið yfir:
Nýtt launamyndunarkerfi betri vinnutíma í vaktavinnu.
Áhrif einstakra breyta á launamyndun. 
Skilgreiningar á vaktavinnumanni.
Orlof vaktavinnumanna.
Forgangsröðun hagsmuna og jafnræði í starfsmannahópi.
Hvíldartímalöggjöf.

Kennt verður í gegnum TEAMS forritið og fá þátttakendur sendan hlekk inn á námskeiðið áður en það hefst.

Hæfniviðmið

Að launafulltrúar þekki lykilatriði launavinnslu og nýrra launamyndunarþátta tengdum betri vinnutíma í vaktavinnu.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Föstudagur 23. apríl kl. 13:00-14:30
  • Lengd
    1,5 klst.
  • Umsjón
    Verkefnastjórn betri vinnutíma í vaktavinnu, Bára H. Jóhannsdóttir, Aldís Magnúsdóttir og Sigríður S. Sæmundsdóttir
  • Staðsetning
    Vefnám
  • Tegund
    Fjarnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Þetta námskeið er ætlað launafulltrúum hjá ríki, Reykjavíkurborg, sveitarfélögum og Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu. Sérstaklega eru launafulltrúar sem starfa með vaktavinnufólk hvattir til að koma á námskeiðið.
  • Gott að vita

    Námskeiðið er ætlað launafulltrúum hjá ríki, Reykjavíkurborg, sveitarfélögum og Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu. 

    Ef aðrir en þeir sem tilgreindir eru í markhópi námskeiðs skrá sig, verða þeir afskráðir.

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce
    soffia(hjá)smennt.is
    550 0060

Dagskrá

DagsetningDagskráKennari
23.04.2021BVV - LaunavinnslaBára Hildur Jóhannsdóttir