Sýslumenn | Microsoft Teams, framhald
Microsoft Teams hefur reynst afar gagnlegt til að halda utan um starfsemi fyrirtækja sem þurfa á stuttum tíma að laga sig að breyttu vinnufyrirkomulagi. Í forritinu felast tækifæri til að gera skipulag verkefna skilvirkari til framtíðar.
Með aðstoð forritsins geta teymi einstaklinga myndað hópa sem vinna saman, deila gögnum og eiga í samskiptum á spjallborði.
Innan hvers teymis má setja upp fleiri en einn hóp er endurspeglar skipulag, í kringum ákveðin verkefni. Innan hópanna má halda fundi, vera með hópspjall, geyma gögn og tengja við aðrar lausnir og forrit.
Á þessu námskeiði skoðum við hvernig við getum fengið enn meira út úr Teams. Við skoðum á meðal annars eftirfarandi:
- Nýttu rásirnar betur
- Tengdu inn réttu forritin
- Vinna með skjöl í Teams (Teams-SharePoint-Office)
- Sérsniðnar stillingar
Fyrirkomulag
Fyrirlestur og verkefniHelstu upplýsingar
- TímiFimmtudagur 13 október kl. 08:30 - 10:30
- Lengd2 klst.
- UmsjónHermann Jónsson fræðslustjóri hjá Tækninám.is
- StaðsetningVefnám á rauntíma, kennt á Teams
- TegundStreymi
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- Gott að vitaNámskeiðið er aðeins ætlað starfsmönnum sem starfa hjá sýslumannsembættunum. Aðildarfélögum Starfsmenntar er námskeiðið að kostnaðarlausu, embættin greiða fyrir aðra starfsmenn. Námskeiðið verður kennt í gegnum TEAMS forritið.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
13.10.2022 | Microsoft Teams framhald | 08:30 | 10:30 | Hermann Jónsson |