Canva, hönnun margmiðlunarefnis

Canva er öflugt og einstaklega notendavænt verkfæri með ókeypis aðgangi þar sem þú getur búið til grípandi margmiðlunarefni.

Með Canva getur þú t.d. búið til kynningar (slides), efni fyrir samfélagsmiðla, textaskjöl með myndefni (t.d. skýrslur og ferilskrár),  bæklinga, lógó, plaggöt, myndbönd og einfaldar vefsíður á þægilegan hátt án þess að þurfa neina reynslu af hönnun. Með gervigreind í Canva og öðrum ókeypis verkfærum er hægt að skapa og breyta myndefni sem unnið er með áfram í Canva.

Canva býður upp á mikið safn af tilbúnum sniðmátum sem þú lærir að aðlaga að þínum þörfum.

Á námskeiðinu er farið yfir helstu möguleika Canva sem veitir þér hagnýta færni til að nýta þetta öfluga tól.

Hæfniviðmið

Að ná öruggum tökum á Canva fyrir fjölbreytt verkefni.

Fyrirkomulag

Vefnámskeið sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er.

Þegar skráningu þinni hefur verið breytt úr Nýr í Samþykkt þá getur þú hafið leikinn með því að hafa samband við kennara eða fylgja leiðbeiningum  á  mínar síður undir Kennslugögn.

Nemendur geta farið í gegnum námsefnið á sínum hraða, algengt er að nemendur fari yfir efnið á 3-5 vikum.

Kennari er þér innan handar í gegnum tölvupóst, með vefspjalli eða í þjónustusíma.

Aðgengi að námsefninu er opið í 12 mánuði eftir upphafsdag svo nemendur hafa nægan tíma til að rifja upp að vild. 

Upplýsingar og aðstoð: sími 7888805,  kennari@nemandi.is, milli 10-20 virka daga.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Skráning er opin til 27. október 2025 en upphafið er valfrjálst
  • Lengd
    18 klst.
  • Umsjón
    Bjartmar Þór Hulduson
  • Staðsetning
    Vefnám utan rauntíma sem hægt er að nálgast hvar og hvenær sem er á námstímanum
  • Tegund
    Vefnám
  • Verð
    52.000 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Öll sem vilja kynnast Canva og ná öruggum tökum á því fyrir fjölbreytt verkefni
  • Mat
    Verkefnaskil
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
27.10.2025Canva12:0006:00Bjartmar Þór Huduson