SSH | Að nýta eigin styrkleika í lífi og starfi
Það er mikilvægt að þekkja inn á styrkleika sína svo þeir nýtist betur í lífi og starfi.
Á námskeiðinu taka þátttakendur styrkleikapróf viacharacter.com og fá fræðslu um prófið, hugmyndafræðina á bakvið það og hvernig nýta má niðurstöðurnar til árangurs.
Þátttakendur nýta niðurstöður prófsins til að bera betur kennsl á eigin styrkleika og annarra, sem getur m.a. aukið gæði samskipta og samstarfs.
Þátttakendur kynnast aðferð sem auðveldar að sjá hvernig nýta má niðurstöður prófsins til að auka árangur og sjá hvernig styrkleikamiðuð nálgun getur aukið vellíðan og sjálfstraust.
Efnistök:
- Styrkleikar, hvað er það og hvernig má nota þá betur
- VIA Character strengths, uppruni og þróun
- Kynnumst 24 styrkleikum prófsins
- Þátttakendur taka VIA Character Strengths (á íslensku eða ensku) og greina sína styrkleika og hvernig þeir birtast í daglegu lífi og hvernig má efla þá og að þeir gefi vind í seglin að ná markmiðum sínum
Hæfniviðmið
Að öðlast dýpri skilning á eigin styrkleikum.
Að geta nýtt styrkleika til að leysa vandamál og ná markmiðum.
Að öðlast aukna vitund um hvernig styrkleikar geta stuðlað að betri líðan og bætt samskipti.
Fyrirkomulag
Fræðsla, umræðurHelstu upplýsingar
- Tími21. ágúst 2025, kl. 13.00 - 16.00. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst.
- Lengd3 klst.
- UmsjónHrefna Guðmundsdóttir, MA Vinnu- og félagssálfræði
- StaðsetningVefnám í rauntíma, kennt á ZOOM
- TegundStreymi
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurAðeins fyrir starfsfólk sem starfar að málefnum fatlaðs fólks í Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Garðabæ, Seltjarnarnesi, Andrastöðum á Kjalarnesi og Ás Styrktarfélagi. Æskilegt er að starfsfólk sæki um SSH námskeiðin í samráði við sína yfirmenn.
- MatMæting og þátttaka
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
21.08.2025 | Að nýta eigin styrkleika í lífi og starfi | 13:00 | 16:00 | Hrefna Guðmundsdóttir |