Trúnaðarmenn Sameykis - Tími með sérfræðingum á kjaradeild Sameykis kl. 14:00-16:00
Hefur þú áhuga á kjara- og réttindamálum og langar í svör við álitaefnum?
Skráðu þig þá á þetta námskeið því hér er hugmyndin að trúnaðarmenn sendi inn fyrir fram spurningar og umræðuefni sem tengjast raunverulegum álitaefnum sem upp koma á vinnustöðum. Á námskeiðinu verður síðan unnið með þær fyrirspurnir sem berast frá trúnaðarmönnum og unnið að lausnum.
Sömuleiðis er hér tækifæri fyrir trúnaðarmenn að koma á framfæri við sérfræðinga Sameykis helstu atriðum sem þeir telja að skipti máli í kjara- og réttindabaráttu félagsmanna.
Helstu efnisþættir:
- Kjaratengd álitaefni.
Markmið að trúnaðarmaður:
- Sé vel upplýstur um helstu þætti kjara- og réttindamála samkvæmt kjarasamningum
- Eigi auðvelt með að taka þátt í og leiða sambærilega umræðu með samstarfsfólki á sínum vinnustað.
Fyrirkomulag
Fyrirlestur, fyrirspurnir og samræðurHelstu upplýsingar
- TímiMiðvikudagur 27. október kl. 14:00-16:00
- Lengd2 klst.
- UmsjónGuðmundur Freyr Steinsson deildastjóri kjaradeildar Sameykis
- StaðsetningGrettisgata 89, 105 Reykjavík
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurTrúnaðarmenn Sameykis
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
- Tengiliður námskeiðsSólborg Alda Pétursdóttirsolborg(hjá)smennt.is
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
27.10.2021 | Kjara- og réttindamál | 14:00 | 16:00 | Guðmundur Freyr Sveinsson |