Reykjavíkurborg - Launaskólinn
Starf launafulltrúans krefst mikillar þekkingar á inntaki kjarasamninga og yfirgripsmiklu regluverki opinbera vinnumarkaðarins. Launafulltrúar gegna ábyrgðarmiklu starfi þar sem lítið má út af bregða vegna mikilla hagsmuna launþega um að afgreiðsla launa og ávinnsla réttinda sé framkvæmd á réttan hátt. Því er mikilvægt að þeir sem vinna við launavinnslu og á starfsmannadeildum þekki sem best umhverfið og lagarammann og hafi vettvang til að deila vinnulagi og ræða verkferla.
Markmiðið með náminu er að svara brýnni þörf fyrir fræðslu um launamál og launaafgreiðslu og tengja það við kjarasamninga og regluverk í starfsmannamálum og á þann hátt að efla sérfræðiþekkingu starfsfólks.
Í lok námskeiðsins er ætlast til að þátttakendur þekki uppbyggingu íslensks vinnumarkaðar og helstu lög og reglur sem eiga við um starfsmenn Reykjavíkurborgar. Einnig að þekkja helstu ákvæði laga og samninga sem varða launaútreikninga og réttindi og skyldur starfsmanna. Þátttakendur fá einnig þjálfun í að taka á vafaatriðum með raunhæfum verkefnum og svara erfiðum fyrirspurnum. Þá verður farið í samskiptareglur, stuðning og siðareglur til að efla starfsfólk og aðstoða það við að standa traustum fótum í krefjandi starfi við úrlausn álita- og ágreiningsmála.
Hæfniviðmið
Að svara brýnni þörf fyrir fræðslu um launamál og launaafgreiðslu og tengja það við kjarasamninga og regluverk í starfsmannamálum og á þann hátt að efla sérfræðiþekkingu starfsfólks.
Fyrirkomulag
Fyrirlestur og umræður.Helstu upplýsingar
- TímiKennt er á mánudögum og miðvikudögum frá kl. 8:30-11:30 nema annað sé tekið fram frá 5. janúar til 23. mars 2022.
- Lengd18 klst.
- UmsjónÝmsir kennarar koma að náminu.
- StaðsetningFjarnám
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurStarfsmenn Reykjavíkurborgar sem koma að launa-, kjara- og mannauðsmálum.
- Gott að vitaNámskeiðiði er aðeins ætlað starfsmönnum Reykjavíkurborgar sem boðaðir hafa verið á námskeiðið.
- Mat80% mæting.
- Tengiliður námskeiðsBjörg Valsdóttirbjorg(hjá)smennt.is550 0060
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
05.01.2022 | Opinber vinnumarkaður, regluverkið um opinbera starfsmenn og samningamál | 08:30 | 11:30 | Sara Lind Guðbergsdóttir |
10.01.2022 | Stjórnsýsla og lagaumhverfi hins opinbera, málsmeðferðir | 08:30 | 11:30 | Sara Lind Guðbergsdóttir |
12.01.2022 | Upphaf starfs, starfsskyldur og starfslok | 09:00 | 12:00 | Sara Lind Guðbergsdóttir |
17.01.2022 | Upphaf starfs, starfsskyldur og starfslok | 08:30 | 11:30 | Sara Lind Guðbergsdóttir |
19.01.2022 | Frí vegna veikinda | 08:30 | 11:30 | Sara Lind Guðbergsdóttir |
24.01.2022 | Upphaf starfs, starfsskyldur og starfslok | 08:30 | 11:30 | Sara Lind Guðbergsdóttir |
26.01.2022 | Óvinnufærni, veikindaréttur og slysatryggingar og Fæðingar- og foreldraorlof | 08:30 | 11:30 | Sara Lind Guðbergsdóttir |