SSH | Skyndihjálp I
Það er mikilvægt að geta brugðist rétt við þegar slys verður á vinnustað. Hér er farið yfir almenna skyndihjálp og þau atriði sem hafa ber í huga þegar unnið er með fötluðum.
Námskeiðin í skyndihjálp eru þrjú. Á fyrsta námskeiðinu, Skyndihjálp I, er fjallað um meginatriði og grundvallarreglur skyndihjálpar, endurlífgun og aðskotahlut í öndunarvegi með sérstaka áherslu á t.d fólk í hjólastólum. Einnig er fjallað um viðbrögð við flogaveikiskasti og meðvitundarleysi.
Þegar fólk hefur lokið Skyndihjálp I II og III hefur það lokið grunnnámskeiði í skyndihjálp.
Hæfniviðmið
Að þátttakendur öðlist grunnfærni í að beita skyndihjálp og sálrænum stuðningi í neyðartilvikum.
Fyrirkomulag
Umræður, fyrirlestur og verklegar æfingarHelstu upplýsingar
- TímiFimmtudagur 1. júní kl. 13:00 - 16:00
- Lengd3 klst.
- UmsjónLaufey Gissurardóttir , leiðbeinandi í skyndihjálp og þroskaþjálfi.
- StaðsetningSkipholt 50 b, 3. hæð, 105 Reykjavík
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurNám ætlað starfsmönnum sem starfa að málefnum fatlaðs fólks í Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Garðabæ og Seltjarnarnesi.
- Gott að vita
Námskeiðið er aðeins ætlað þeim sem boðaðir hafa verið á það af sínum yfirmönnum (fyrir starfsfólk sem starfar að málefnum fatlaðs fólks í Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Garðabæ og Seltjarnarnesi).
Námskeiðið er að kostnaðarlausu fyrir aðildarfélaga Starfsmenntar en bæjarfélögin greiða námskeiðsgjald fyrir aðra.
- MatMæting
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
01.06.2023 | Skyndihjálp I | 13:00 | 16:00 | Laufey Gissurardóttir |