Landhelgisgæslan | Power BI

Á þessu námskeiði lærir þú að nota öfluga greiningarverkfærið Power BI.

Þú leysir hagnýt verkefni með Power BI Desktop, fræðist um innlestur gagna frá mismunandi gagnalindum, innslátt og hreinsun gagna, gagnavinnslu og frágang gagna fyrir skýrslugerð. Þú öðlast færni í myndrænni birtingu gagna og mælaborðum, kynnist opinni og lokaðri deilingu gagna, deilingu þeirra í snjalltæki.

Þú öðlast góðan grunn við að nálgast og tengjast gagnagrunnum, gera gagnagreiningar út frá fjölbreyttum gögnum auk þess að hafa góð tök á a útbúa mælaborð og skýrslur og deila niðurstöðum.

Hæfniviðmið

Að geta unnið með og deilt gögnum á áhrifaríkan hátt með Power BI, öflugu greiningarverkfæri frá Microsoft.

Fyrirkomulag

Kennarinn veitir þér aðgang a rafrænu netskólakerfi. Þar skoðar nú námsefnið og leysir verkefni rafrænt. Námskeiði stendur yfir í 3 vikur en stuðningur er veittur að því loknu. Þú hefur aðgang að námsefninu allt skólaárið.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Skráning er opin til 16. maí 2024 en upphafið er valfrjálst.
  • Lengd
    18 klst.
  • Umsjón
    Bjartmar Þór Hulduson, tölvukennari.
  • Staðsetning
    Vefnám utan rauntíma sem hægt er að nálgast hvar og hvenær sem er á námstímanum
  • Tegund
    Vefnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Starfsfólk Landhelgisgæslunnar
  • Gott að vita
     
  • Mat
    Verkefnaskil
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
16.05.2024Power BI23:5923:59Bjartmar Þór Hulduson