Word I
Á þessu námskeiði lærir þú hvernig hægt er að nýta Word til þess að leysa fjölbreytt verkefni.
Þú kynnist helstu skipunum og verkfærum í forritinu.
Þú lærir grunnatriði í útlitsmótun og uppsetningu texta og kynnist prentun.
Þú vinnur með myndefni og aðlagar það að texta, vinnur með töflur, inndrátt og sniðmát.
Hæfniviðmið
Að geta nýtt sér grunnfærni í Word forritinu
Fyrirkomulag
Vefnámskeið sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er. Á fyrsta degi veitir kennarinn þér aðgang að rafrænu netskólakerfi þar sem námsefnið er aðgengilegt. Hann er þér innan handar í gegnum tölvupóst, vefspjall eða þjónustusíma.
Nánari upplýsingar um námskeiðið fást hjá kennara í síma 788 8805 milli kl. 10 – 20 virka daga eða í gegnum netfangið kennari(hjá)nemandi.is
Helstu upplýsingar
- TímiSkráning er opin til 29. ágúst 2025 en upphafið er valfrjálst
- Lengd18 klst.
- UmsjónBjartmar Þór Hulduson, tölvukennari
- StaðsetningVefnám utan rauntíma sem hægt er að nálgast hvar og hvenær sem er á námstímanum
- TegundVefnám
- Verð52.000 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurÖll sem vilja nýta kosti Word til fullnustu
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
- MatVerkefnaskil
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
Dagskrá
| Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
|---|---|---|---|---|
| 29.08.2025 | Word I | 08:00 | 02:00 | Bjartmar Þór Hulduson |