Isavia - Tímamót og tækifæri

Hér er fjallað um ólíka þætti þeirra kaflaskila sem starfslok eru í lífi fólks. Eftir áratugalanga veru á vinnumarkaði þarf fólk að takast á við breytt hlutverk á jákvæðan og uppbyggilegan hátt. Rætt er um bæði andlegar og félagslegar hliðar þessara breytinga og hve mikilvægt er að vera undir þær búinn. 

Farið er yfir réttindi og fjármál eldri borgara, bæði út frá lífeyrisréttindum (LSR) og almannatryggingakerfinu. Rætt erum um heilsueflingu á efri árum og hve mikilvæg heilsurækt, hreifing og næring eru til þess að auka líkur á farsælli öldrun. 

Dagskrá:

09:00 – 09:50  Kynningarfyrirlestur
09:50 – 10:00  Liðleikaæfingar og kaffihlé
10.00 – 11:45  Lífeyrismál og réttindi við starfslok
11.45 – 12.30  Hádegismatur
12:30 – 13:15  Hreyfing á efri árum, til mikils að vinna
13:15 – 14:00  Svefn og svefnvenjur
14:00 – 14:15  Liðkum málbein og líkama
14:15 – 14:45  Við förum með bílinn í skoðun, erum við nokkuð að gleyma okkur?
14:45 – 15:00  Öndum
15:00 – 15:45  Andleg og félagsleg heilsa
15:45 – 16:00  Þakklætis- og kveðjustund hópsins

Hæfniviðmið

Að þátttakendur séu betur búnir undir starfslok, bæði félagslega og andlega.

Að þátttakendur þekki helstu réttindi í lífeyrissjóðum og almannatryggingakerfinu.

Að þátttakendur þekki mikilvægi heilsueflingar á efri árum.

Fyrirkomulag

Fyrirlestrar, umræður og verkefni.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Þriðjudaginn 1. júní 2021 frá kl. 9:00-16:00
  • Lengd
    7 klst.
  • Umsjón
    Ýmsir kennarar koma að námskeiðinu.
  • Staðsetning
    Hótel Hilton, Nordica, Reykjavík.
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Námskeiðið er sérstaklega ætlað þeim sem eru að láta af störfum sökum aldurs.
  • Gott að vita
    Námskeiðið er aðeins ætlað starfsfólki Isavia sem boðað hefur verið á það.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting
  • Tengiliður námskeiðs
    Björg Valsdóttir
    bjorg(hjá)smennt.is

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
01.06.2021Tímamót og tækifæri09:0016:00Ýmsir kennarar koma að kennslunni.