Óvinnufærni, veikindaréttur, slysatryggingar, foreldra- og fæðingarorlof og sorgarleyfi
Á námskeiðinu verða reglur um réttindi starfsfólks til launa vegna óvinnufærni teknar fyrir. Óvinnufærniskilyrðið er skoðað sérstaklega og farið yfir atriði eins og tilkynningarskyldu starfsmanns, læknisvottorð, rétt til launaðra fjarvista/veikindadaga, heimild til að vinna skert starf (hlutaveikindi) og skilyrði fyrir endurkomu í starf eftir lengri veikindi (starfshæfnisvottorð). Þá er fjallað um rétt til slysatryggingar vegna varanlegrar örorku og dánarbóta. Einnig verður fjallað um fæðingar- og foreldraorlof og lög um sorgarleyfi.
Hæfniviðmið
• Að öðlast þekkingu og skilning á skilyrðinu um óvinnufærni
• Að kunna skil á reglum um veikindarétt og skyldur starfsfólks
• Að þekkja þær reglur sem gilda um slys, örorku og dánarbætur
• Að þekkja reglur um fæðingar- og foreldraorlof og lög um sorgarleyfi.
Fyrirkomulag
Fyrirlestur og umræður.Helstu upplýsingar
- Tími20. febrúar 2025 kl. 9.00-12.00. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst.
- Lengd3 klst.
- UmsjónGuðný Einarsdóttir, sérfræðingur hjá KMR
- StaðsetningVefnám í rauntíma, kennt á Teams
- TegundStreymi
- Verð19.500 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurÞau sem koma að starfsmanna- og kjaramálum.
- Gott að vita
- MatMæting
- Tengiliður námskeiðsSólborg Alda Pétursdóttir
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
20.02.2025 | Óvinnufærni, veikindaréttur, slysatryggingar, foreldra- og fæðingarorlof, sorgarleyfi | 09:00 | 12:00 | Guðný Einarsdóttir |