Í gáttinni er að finna námskeið sem eru valin í samvinnu við stofnunina. Markmiðið með námskeiðunum er að auka hæfni starfsfólks, bæta frammistöðu, auka sjálfsöryggi þess og starfsánægju ásamt því að bæta þjónustu og samhæfa fagleg vinnubrögð.

Fyrir hverja?
Námskeið sem eru merkt stofnuninni eru aðeins ætluð starfsfólki hennar. Önnur námskeið eru valin úr almennu námsframboði Starfsmenntar.

Hver greiðir?
Sjóðir eða stofnanir greiða fyrir þátttöku á námskeið sem eru merkt stofnuninni. Um önnur námskeið gilda almennar reglur um greiðsluþátttöku.

Hvernig á að skrá sig?

  1. Smelltu á plúsinn eða nafn námskeiðsins.
  2. Smelltu á Upplýsingar og skráning.
  3. Smelltu á Skrá mig.
  4. Skráðu kennitöluna þína og smelltu á Áfram.
  5. Veldu að skrá þig inn með lykilorði eða rafrænum skilríkjum.
  6. Staðfestu skráninguna.

Að þessu loknu berst þér tölvupóstur frá okkur sem staðfestir skráningu þína á námskeið. Tölvupósturinn gæti lent í ruslpóstinum svo kíktu þangað ef þig er farið að lengja eftir staðfestingu. Hafðu endilega samband ef þig vantar aðstoð!

Skoðaðu öll námskeið Starfsmenntar      |      Viltu spjalla við náms- og starfsráðgjafa?

 

Hvað ef að streita er ekki svo neikvæð eftir allt saman? Í þessum fyrirlestri verður farið í hvernig hægt er að virkja streitu til góðra verka og hvernig hún getur haft jákvæð áhrif á okkur. Fyrirlesturinn er eingöngu fyrir starfsfólk lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Hefst:
09. september 2025
Kennari:
Eyþór Eðvarðsson
Verð:
Án kostnaðar
Tegund:
Staðnám

Í þessum fyrirlestri verður farið í hvernig hægt er að auka gleði, jákvæðni og orku á vinnustaðnum. Fyrirlesturinn er eingöngu fyrir starfsfólk lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Hefst:
07. október 2025
Kennari:
Ingrid Kuhlman
Verð:
Án kostnaðar
Tegund:
Staðnám

Í þessum fyrirlestri verður farið yfir samskipti á vinnustað, gleði og starfsánægju og hverjir helstu áhrifaþættir þeirra eru. Fyrirlesturinn er eingöngu fyrir starfsfólk lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Hefst:
11. nóvember 2025
Kennari:
Eyþór Eðvarðsson
Verð:
Án kostnaðar
Tegund:
Streymi