Excel - Pivot
Á námskeiðinu er farið ítarlega í veltitöflur (Pivot Table) og hvernig nota má Excel við framsetningu og úrvinnslu gagna.
Fjallað er um það hvernig búa má til kvik mælaborð (dýnamísk) og birta gögn byggt á vali.
Á námskeiðinu er fjallað um veltitöflur (Pivot Table):
- Uppsetning á gögnum fyrir veltitöflur og auðgun gagna
- Virkni veltitaflna, kosti og galla
- Notkun sía (filter) og sneiðara (slicer) til að birta gögn
- Hvernig vísa má í veltitöflur með formúlum
- Pivot gröf og hvernig smíða má mælaborð með því að tengja saman töflur og gröf
Hæfniviðmið
Að kunna að vinna úr og setja upp gögn með veltitöflum (pivot)
Að geta notað veltitöflur (pivot) við dagleg störf
Fyrirkomulag
Áhersla verður lögð á vinnslu hagnýtra verkefna í gegnum allt námskeiðið og þátttakendur aðstoðaðir við að setja efni námskeiðsins í samhengi við sín daglegu störf.
Helstu upplýsingar
- Tími13. og 15. október 2025 kl. 12.30 - 16.00 Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst
- Lengd7 klst.
- UmsjónSnorri Sigurðsson, verkfræðingur og sérfræðingur í gagnagreiningum hjá Controlant.
- StaðsetningVefnám í rauntíma, kennt á Zoom
- TegundStreymi
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurNámskeiðið er ætlað þeim sem hafa góðan grunn í Excel, s.s. góða þekkingu á helstu innbyggðu föllum. Námskeiðið hentar einnig þeim sem vilja auka hæfni sína í Excel og opna dyr að flóknari og öflugri hliðum þess.
- Gott að vitaÞau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga rétt hjá samstarfssjóðum Starfsmenntar verða afskráð en geta skráð sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en þátttakandi hefur fengið staðfestingarpóst frá Endurmenntun HÍ.
Skráning á þetta námskeið hefst 05. 08 2025 kl 09:00
- MatMæting
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
13.10.2025 | Excel - Pivot | 12:30 | 16:00 | Snorri Sigurðsson |
15.10.2025 | 12:30 | 16:00 |