Velferðartækni

Með aukinni tækniþróun bjóðast ný tækifæri í velferðarþjónustu. Velferðartækni getur verið hver sú tækni sem er notuð til þess að viðhalda eða auka öryggi, virkni eða sjálfstæði fólks í daglegu lífi. Hún getur bætt vinnuumhverfi og leitt til betri nýtingu á tíma starfsfólks og fjármagns.

Á námskeiðinu verður fjallað um nýsköpun í tækni sem nýtist m.a. við umönnun. Farið verður yfir hvaða tækni má nýta við verklega aðstoð og skipulag inná heimilium og hvaða hjálpartæki bjóðast. Eins verður fjallað um sérkennslu og atvinnu með stuðningi. Þá verður kynnt ný tækni sem nýtist við þjálfun og endurhæfingu.

Hæfniviðmið

Að auka þekkingu og færni til að takast á við nýjungar og tækniþróun í velferðarþjónustu.

Fyrirkomulag

Kennsla fer fram í vefnámi á Teams þriðjudaga og fimmtudaga kl. 17.00-20.00 

Helstu upplýsingar

  • Tími
    9. september - 9. október 2025. Skráningu lýkur 2 virkum dögum áður en námskeið hefst.
  • Lengd
    40 klst.
  • Umsjón
    Erna María Jensdóttir mannfræðingur/fyrrv. forstöðumaður sambýlis, Þórunn Svava Róbertsdóttir þroskaþjálfi og sérkennari og Sunna Hafsteinsdóttir iðjuþjálfi
  • Staðsetning
    Microsoft Teams og í húsnæði Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum (MSS).
  • Tegund
    Streymi
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Þau sem vinna í eða vilja vinna í velferðarþjónustu og vilja öðlast aukna þekkingu og færni í að takast á við nýjungar og tækni í faginu
  • Gott að vita

    Eingöngu félagsmenn aðildarfélaga og samstarfssjóða Starfsmenntar geta skráð sig hér á námskeiðið. Aðrir verða að skrá sig hjá MSS.

Skráning á þetta námskeið hefst 05. 08 2025 kl 08:00
  • Mat
    Engin lokapróf eru en lögð er áhersla á verkefnavinnu, verklegar æfingar, hópavinnu, umræður og rökræður.
  • Tengiliður námskeiðs
    Ingibjörg Hanna Björnsdóttir

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
09.09.2025Velferðartækni00:0000:00Ýmsir sérfræðingar