Fagnámskeið fyrir starfsmenn í heilbrigðis- og félagsþjónustu
Í náminu er lögð áhersla á sjálfseflingu, lífsgæði og réttindi skjólstæðinga og starfsfólks.
Helstu námsþættir:
- Skilningur á starfsemi í félags og heilbrigðisþjónustu
- Að vinna að lausnum og undir álagi
- Fjömenningarfærni
- Vellíðan, smitvarnir
- Iðja og iðjuþjálfun, umönnun
- Frumkvæði
- Gæðavitund og viðskiptavinurinn í brennidepli.
Námið er skipulagt í samræmi við námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins.
Námið spannar 210 klukkustundir.
Meta má námið til allt að 10 eininga á framhaldsskólastigi.
Nánar má sjá um námið hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum.
Hæfniviðmið
Að auka færni og þekkingu þátttekenda á aðstæðum og þörfum skjólstæðinga til að efla lífsgæði þeirra og virkni.
Fyrirkomulag
Kennt verður í dreifnámi í gegnum Teams á mánudögum og miðvikudögum kl. 17-20. Staðlotur verða einu sinni í mánuði í húsnæði MSS að Krossmóa 4a, 230 Reykjanesbæ, 3. hæð.
Helstu upplýsingar
- Tími3. september - 17. desember 2025. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst
- Lengd210 klst.
- UmsjónStefán E. Hafsteinsson iðjuþjálfi og Torfi Jónsson sálfræðingur ásamt fleirum
- StaðsetningMicrosoft Teams og í húsnæði Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum (MSS)
- TegundStreymi
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurNámið er ætlað þeim sem vinna eða vilja vinna í félags- og heilbrigðisþjónustu og hafa ekki lokið formlegu framhaldsskólanámi
- Gott að vita
Eingöngu félagsmenn aðildarfélaga og samstarfssjóða Starfsmenntar geta skráð sig hér á námskeiðið.
Aðrir verða að skrá sig hjá MSS
Skráning á þetta námskeið hefst 05. 08 2025 kl 08:00
- MatNámsmat er byggt á verkefnavinnu og þátttöku. Engin próf
- Tengiliður námskeiðsIngibjörg Hanna Björnsdóttir
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
03.09.2025 | Fagnámskeið fyrir starfsmenn í heilbrigðis og félagsþjónustu | 00:00 | 00:00 | Ýmsir sérfræðingar |