Fagnám í umönnun fatlaðra

Breyttar áherslur í starfi með fólki með fötlun kalla á aukna fagmennsku og markvissa starfsþróun þannig að starfsfólk geti veitt framsækna og metnaðarfulla þjónustu.

Námið miðar að því að auka færni og þekkingu á aðstæðum og þörfum fólks með fatlanir í því skyni að efla lífsgæði þeirra og virkni. Þar er lögð áhersla á sjálfseflingu, lífsgæði og réttindi fólks með fatlanir.

Námið er skipulagt í samræmi við námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins.

Námið spannar 324 klukkustundir en 164 stundir eru með leiðbeinanda og 160 stundir án leiðbeinanda (starfsreynsla/þjálfun).

Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur samþykkt að meta megi námið til allt að 16 eininga á framhaldsskólastigi. 

Hæfniviðmið

Að auka færni og þekkingu námsmanna á aðstæðum og þörfum fatlaðs fólks til að efla lífsgæði þeirra og virkni.

Fyrirkomulag

Kennsla fer fram í vefnámi á Teams mánu- og miðvikudaga kl. 17.00 - 20.30. 

Einnig er staðlota einn laugardag í mánuði í húsnæði MSS að Krossmóa 4a, 230 Reykjanesbæ, 3. hæð. Staðlotan verður tekin upp fyrir þau sem ekki komast.

Mögulegt er að hlutsta á upptökur eftir á en þá þarf að skila inn ígrundun og verkefni um efni tímans.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    17. september - 17. desember 2025. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst.
  • Lengd
    324 klst.
  • Umsjón
    Nanna Bára Maríasdóttir félagsráðgjafi og Hólmfríður Karlsdóttir B.ed.
  • Staðsetning
    Microsoft Teams og í húsnæði Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum (MSS).
  • Tegund
    Streymi
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Þau sem starfa eða vilja starfa við umönnun fatlaðra en einnig þau sem starfa eða vilja starfa með með börnum eða unglingum í vanda og/eða öldruðum og sjúkum.
  • Gott að vita

    Eingöngu félagsmenn aðildarfélaga og samstarfssjóða Starfsmenntar geta skráð sig hér á námskeiðið.
    Aðrir verða að skrá sig hjá MSS.

Skráning á þetta námskeið hefst 05. 08 2025 kl 08:00
  • Mat
    Verkefnaskil ásamt 80% mætingarskyldu og virkri þátttöku.
  • Tengiliður námskeiðs
    Ingibjörg Hanna Björnsdóttir

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
17.09.2025Fagnám í umönnun fatlaðra00:0000:00Ýmsir sérfræðingar