Skálatún | Skyndihjálp III kl. 15 - 18

Það er mikilvægt að geta brugðist rétt við þegar slys verður á vinnustað. Hér er farið yfir almenna skyndihjálp og þau atriði sem hafa ber í huga þegar unnið er með fötluðum. 

Námskeiðið hefst á upprifjun úr skyndihjálp I og II.  Fjallað er um rafmagnsslys, kal, ofkælingu, ofhitun, eitranir, bráða sjúkdóma og sálræna skyndihjálp.

Eftir námskeiðin þrjú á að vera búið að fjalla um eftirtalin atriði:

  • Aðgerðir á vettvangi 
  • Skoðun og mat
  • Endurlífgun fullorðinna og barna 
  • Losun aðskotahluta 
  • Brunasár 
  • Blæðing 
  • Beinbrot  og liðáverkar
  • Höfuðáverkar 
  • Sálrænn stuðningur
  • Bráð veikindi, s.s. brjóstverkur, bráðaofnæmi, flogaveiki, sykursýki, öndunarerfiðleika og heilablóðfall

Þegar fólk hefur lokið Skyndihjálp I  II og III hefur það lokið grunnnámskeiði í skyndihjálp.

Hæfniviðmið

Að þátttakendur öðlist grunnfærni í að beita skyndihjálp og sálrænum stuðningi í neyðartilvikum.

Fyrirkomulag

Umræður, fyrirlestur og verklegar æfingar

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Fimmtudagur 13. apríl kl. 15:00 - 18:00
  • Lengd
    3 klst.
  • Umsjón
    Laufey Gissurardóttir , leiðbeinandi í skyndihjálp og þroskaþjálfi
  • Staðsetning
    Í gömlu "hlöðunni" (vinnustofur Skálatúns), Skálahlíð 9.
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Starfsfólk Skálatúns
  • Gott að vita
    Námskeiðið er aðeins ætlað þeim sem boðaðir hafa verið á það.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting og þátttaka
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
13.04.2023Skyndihjálp III15:0018:00Laufey Gissurardóttir